Jafnréttis- og mannréttindaráð

74. fundur 11. desember 2019 kl. 17:00 - 20:15 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Gunnar Sær Ragnarsson formaður
  • Karen E. Halldórsdóttir varafulltrúi
  • Davíð Snær Jónsson aðalmaður
  • Soumia I. Georgsdóttir aðalmaður
  • Hákon Helgi Leifsson aðalmaður
  • Jón Magnús Guðjónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Ása A. Kristjánsdóttir Jafnréttisráðgjafi
Dagskrá

Almenn mál

1.1912037 - Umsókn um styrk frá jafnréttis- og mannréttindaráði

Umsókn frá Donata Honkowicz-Bukowska
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að styrkja verkefnið um kr. 250.000

Almenn mál

2.1912218 - Umsókn um styrk frá jafnréttis- og mannréttindaráði 2019

Umsókn frá Margréti V. Friðþjófsdóttur
Jafnréttis- og mannréttindaráð ákveður að styrkja verkefnið um kr. 150.000

Almenn mál

3.1809652 - Styrkveiting jafnréttis- og mannréttindaráðs

Aftur kemur það fyrir að ráðið hefur ekki fjármagn til að styrkja þau verðugu verkefni sem sótt er um að fullu. Því beinir jafnréttis- og mannréttindaráð því aftur til bæjarstjórar þeirri ósk að hækka fjármagn fyrir styrkveitingu ráðsins úr 400.000 kr. í 1.000.000 kr.

Upphæð umrædds styrkjar hefur ekki verið hækkuð í árana raðir, og er það mat ráðsins að tímabært sé að hækka styrkupphæðina þar sem hafna hefur þurft verðugum verkefnum í þágu jafnréttis- og mannréttindamála í Kópavogsbæ. Með þessu myndi Kópavogsbær sýna virðingu fyrir málaflokknum í verki og styðja við framgang jafnréttis- og mannréttindamála í sveitarfélaginu.
Davíð Snær Jónsson fór af fundi kl. 17:30

Almenn mál

4.1811071 - Jafnréttisáætlun Kópavogs 2018-2022

Farið yfir umsagnir sem borist höfðu.

Fundi slitið - kl. 20:15.