Leikskólanefnd

35. fundur 05. febrúar 2013 kl. 16:30 - 18:30 í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Fundinn sátu:
  • Sesselja Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Arnþór Sigurðsson aðalfulltrúi
  • Friðrik Friðriksson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður M Grétarsson aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Aðalsteinn Jónsson aðalfulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson aðalfulltrúi
  • Rakel Ýr Isaksen áheyrnarfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs
Fundargerð ritaði: Sesselja Hauksdóttir leikskólafulltrúi
Dagskrá

1.1302002 - Innleiðing aðalnámskrár grunnskóla - könnun - Samstarfsverkefni Mennta- og menningarmálaráðuneytis,

Lagt fram.

2.1301620 - Beiðni um auka skipulagsdaga starfsárin 2013-2015

Leikskólastjórar óska eftir einum viðbótarskipulagsdegi skólaárin 2013-2015 vegna vinnslu og innleiðingar skólanámskrár. Þeir benda á að erfitt sé að vinna að nýrri námskrá þegar fundartímar starfsmanna hafa að mestu verið lagðir niður.  

Málinu frestað til næsta fundar.  

3.1206139 - Starfsáætlun leikskóla fyrir 2012-2013

Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlun leikskólans Yls, en bendir á að umsögn foreldraráðs vantar.

4.1301116 - Umsókn um leyfi til daggæslu barna

Leikskólanefnd samþykkir leyfið.

5.1208797 - Fundir leikskólastjóra 2012-2013

Lögð fram 4 fundargerð leikskólastjóra vegna 2012-2013.  Í fundargerðini er ályktun þar sem leikskólastjórar óska eftir að fyrirkomulag skipulagsdaga verði með fyrra horfi.

 

Á fundi leikskólanefndar 29. mars 2012 var eftirfarandi bókað:

"Meirihluti leikskólanefndar felur leikskólastjórum í samstarfi við skólastjóra grunnskóla að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2012-2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi."  

 

Leikskólanefnd samþykkir fyrri bókun vegna skólaársins 2013-2014.  

 

6.1301756 - Leikskólastyrkir vegna barna í einkareknum leikskólum

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:30.