Leikskólanefnd

98. fundur 16. október 2018 kl. 17:15 - 19:00 í Álfhólsskóla
Fundinn sátu:
  • Hannes Þórður Þorvaldsson aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson formaður
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hákon Helgi Leifsson aðalmaður
  • Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Sigurlaug Bjarnadóttir deildarstjóri Leikskóla
Dagskrá
Fundurinn var sameiginlegur fundur nefnda og ráða Menntasviðs Kópavogs.

Leikskólanefnd þakkar Sigrúnu Bjarnadóttur, skólastjóra Álfhólsskóla góðar móttökur og frábærar veitingar

Almenn mál

1.1701611 - Lýðheilsa ungs fólks í Kópavogi - Rannsókn meðal nemenda í 8., 9. og 10 bekk árið 2018

Kynning á niðurstöðum rannsóknar
Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsókn og greiningu kynnti niðurstöður rannsóknar meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Kópavogs árið 2018.

Almenn mál

2.1412128 - Lýðheilsustefna í Kópavogi

Kynning á stöðu innleiðingar.
Anna Elísabet Ólafsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsumálum hjá Kópavogsbæ kynnti verkefni lýðheilsustefnu. Nefndi hún dæmi um hvernig rannsóknir sem og vísar/mælikvarðar eru nýttir til að skipuleggja og fylgjast með framgangi verkefna.

Fundi slitið - kl. 19:00.