Leikskólanefnd

121. fundur 15. september 2020 kl. 17:00 - 18:40 í Golfskála GKG
Fundinn sátu:
  • Bergþóra Þórhallsdóttir aðalmaður
  • Hannes Þórður Þorvaldsson aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson formaður
  • Erla Dóra Magnúsdóttir aðalmaður
  • Eva Sjöfn Helgadóttir aðalmaður
  • Valéria Kretovicová áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Karen Rúnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Sigurlaug Bjarnadóttir deildarstjóri Leikskóla
Dagskrá
Sameiginlegur fundur íþróttaráðs, leikskólanefndar og menntaráðs.

Almenn mál

1.2005050 - Menntasvið-Rannsókn og greining - Niðurstöður Ungt fólk 2020

Fulltrúi frá Rannsókn og greiningu kynnir niðurstöðu fyrir Kópavog á rannsókninni Ungt fólk, sem tekin var síðastliðinn vetur meðal nemenda í 8., 9. og 10 bekk í grunnskólum Kópavogs.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir, frá Rannsóknir og greining ehf, kynnti helstu niðurstöður fyrir Kópavog.

Almenn mál

2.1804413 - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna

Kynning á tilkynningahnappi í spjaldtölvum hjá nemendum í 5. -10. bekk í grunnskólum Kópavogs. Tilgangur tilkynningahnapps er að veita börnum greiðari aðgang að því leita aðstoðar hjá barnavernd Kópavogs.
Margrét Friðriksdóttir, formaður menntaráðs og Ragnheiður Hermannsdóttir deidarstjóri grunnskóladeildar, kynntu aðdraganda að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tilkynningarhnapp Barnaverndar, sem er ein af aðgerðum við innleiðingu sáttmálans.

Fundi slitið - kl. 18:40.