Leikskólanefnd

10. fundur 03. nóvember 2009 kl. 16:15 - 18:15 í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Fundargerð ritaði: Sesselja Hauksdóttir leikskólafulltúi
Dagskrá

1.910466 - Leikskólanefnd, áheyrnarfulltrúar

Tilkynnt um nýja fulltrúa starfsmanna leikskóla og leikskólastjóra til næstu tveggja ára.

Nýr aðalfulltrúi starfsmanna er Rakel Ýr Ísaksen, til vara Ragnhildur Ólafsdóttir.

Fulltrúar leikskólastjóra verða þeir sömu og áður, Helga E. Jónsdóttir aðalmaður og Hólmfríður Sigmarsdóttir til vara.

Formaður bauð Rakel Ýr velkomna og þakkaði Sigurveigu fyrir gott og öflugt samstarf.

2.911006 - Starfsmannamál - leikskólanefnd 03.11.2009

Leikskólanefnd samþykkir ráðningar umsækjenda.

3.911021 - Rekstraryfirlit og eftirfylgni bæjarins vegna útboðsleikskóla

Anna Birna Snæbjörnsdóttir kynnti rekstrarstjóra fræðslusviðs, Sindra Sveinsson. 

Sindri yfirfór hvernig eftirfylgni hafi verið háttað hvað varðar rekstur.

Leikskólanefnd óskar eftir að gerð verði áætlun um hvernig faglegu og rekstrarlegu eftirliti með útboðsleikskólum skuli háttað.

4.911004 - Fjárhagsáætlun v/2010. Sparnaðarhugmyndir

Farið yfir drög að sparnaðarhugmyndum og þær ræddar.

Óskað eftir samanburði á gjaldskrám leikskóla í sveitarfélögum.

Málið verði tekið upp á næsta fundi nefndarinnar.

5.910512 - Styrkbeiðnir

Leikskólanefnd vísar erindi leikskólastjóra í Arnarsmára til næsta fjárhagsárs.

Leikskólanefnd sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðni Fjólu Þorvaldsdóttur. 

6.911005 - Viðmið Kópavogsbæjar vegna fjölda barna í leikskólum Kópavogs

Lögð fram.

7.910521 - Ósk frá leikskólanum Furugrund um að taka samfellda skipulagsdaga vegna námsferðar

Leikskólanefnd samþykkir umsóknina með fyrirvara um samþykki foreldrafélags leikskólans.

8.910067 - Starfsáætlanir leikskóla 2009-2010

Frestað til næsta fundar.

9.909518 - Önnur mál

Engin önnur mál.

 

 

Fundi slitið kl. 18.30.

Næsti fundur áformaður 17. nóvember.

 

 

Fundargerð ritaði Sesselja Hauksdóttir

 

 

Fundi slitið - kl. 18:15.