Lista- og menningarráð

352. fundur 02. mars 2010 kl. 16:30 - 18:00 í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Fundargerð ritaði: Linda Udengård deildarstjóra menningarmála
Dagskrá

1.1003007 - Málefni Listasafns Kópavogs- Gerðarsafns 2010

Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns kom á fundinn.  Hún kynnti hugmyndir að sýningum í safninu seinni hluta árs.

2.1003006 - Málefni Bókasafns Kópavogs 2010

Forstöðumaður Bókasafns Kópavogs sagði frá þátttöku bókasafnsins í norrænu verkefni, Nordic library network - Network of Nordic Puplic Libraries sem styrkt er af Norrænu menningargáttinni.  Einnig var rætt um aðsóknartölur safnsins. 

3.1002201 - Verkefna- og viðburðastyrkir Lista- og menningarráðs 2010.

Auglýsingar frá Lista- og menningarráði lagðar fram til kynningar.

Lagt fram.

4.909226 - Umsókn um að setja upp sýningu í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni.

Lista- og menningarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu að svo stöddu.  Forstöðumanni Listasafns Kópavogs - Gerðarsafns er falið að ræða við umsækjanda. 

5.909009 - Kópavogsdagar 2010

Linda Udengård kynnti boðaðan kynningarfund sem halda á í Salnum fimmtudaginn 4. mars nk.  Lagt fram.

6.1002293 - Umsókn um styrk vegna sýningar á verkum Magnúsar Árnasonar í Náttúrufræðistofu Kópavogs, á Kópavogsd

Afgreiðslu umsóknar er frestað.  Deildarstjóra falið að fá nánari upplýsingar.

Fundi slitið - kl. 18:00.