Lýðheilsu- og íþróttanefnd

10. fundur 26. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:45 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sverrir Kári Karlsson formaður
  • Helgi Ólafsson aðalmaður
  • Sunna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir aðalmaður
  • Gunnar Gylfason aðalmaður
  • Matthías Hjartarson áheyrnarfulltrúi
  • Andrés Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gunnar Guðmundsson
  • Ana Tepavcevic
Fundargerð ritaði: Gunnar Guðmundsson deildarstjóri íþróttadeildar
Dagskrá

Almenn mál

1.2102649 - Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

Kynning á stöðu innleiðingar farsældar barna.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Sólveigu Norðfjörð, verkefnastjóra farsældar fyrir góða kynningu.

Almenn mál

2.25032701 - Málefni stúkubyggingar í Kórnum

Tekin til umfjöllunar málefni stúkubyggingar við félagssvæði HK í Kórnum.
Ármann Halldórsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar, kynnti stöðu mála.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar fyrir kynninguna.

Almenn mál

3.26011549 - Æfingatöflur íþróttamannvirkja 2026-2027 - Rammi til úthlutunar

Lagður fram rammi að æfingatöflum fyrir veturinn 2026-2027.
Lagt fram.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðan ramma fyrir 2026/2027.

Almenn mál

4.25081671 - Endurskoðun á reglum og reglugerðum lýðheilsu- og íþróttanefndar

Á fundi lýðheilsu- og íþróttanefndar 28. ágúst 2025 var eftirfarandi bókað: "Reglur um aðstöðu til æfinga og keppni þarf hinsvegar að taka til nánari endurskoðunar. Ákveðið að formaður nefndarinnar ásamt fulltrúa Samfylkingarinnar vinni að endurskoðun með starfsmönnum íþróttadeildar". Þessari vinnu er nú lokið og endurskoðaðar reglur lagðar fram til samþykktar í nefndinni.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðar tillögur að endurskoðuðun á Afnotareglum íþróttamannvirkja.

Almenn mál

5.26021474 - Sumarnámskeið íþróttafélaga 2026

Lögð fram gögn varðandi umsóknir íþrótta- og tómstundafélaga um sumarnámskeið á komandi sumri.
Lagt fram.

Almenn mál - umsagnir og vísanir

6.2511188 - Styrkbeiðni vegna ritunar á sögu Breiðabliks í tilefni 80 ára afmælis félagsins

Tekið fyrir erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks, dags. 31.10 2025, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 6 milljónir króna til ritunar sögu félagsins. Menningar- og mannlífsnefnd vísaði beiðninni til lýðheilsu- og íþróttanefndar á fundi sínum 4. febrúar.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til bæjarráðs á þeim forsendum að nefndin hefur ekki fjárheimildir til að ráðstafa í verkefnið.

Önnur mál

7.2209435 - Heimsóknir til íþróttafélaga 2022 - 2026

Hestamannafélagið Sprettur heimsótt í félagsaðstöðu í Samskipahöllinni.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Spretti fyrir góða kynningu.

Fundi slitið - kl. 18:45.