Lýðheilsu- og íþróttanefnd

11. fundur 26. mars 2026 kl. 16:00 - 18:15 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sverrir Kári Karlsson formaður
  • Helgi Ólafsson aðalmaður
  • Sunna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir aðalmaður
  • Matthías Hjartarson áheyrnarfulltrúi
  • Andrés Pétursson áheyrnarfulltrúi
  • Þorvar Hafsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Gunnar Guðmundsson
  • Ana Tepavcevic
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir
Fundargerð ritaði: Gunnar Guðmundsson deildarstjóri íþróttadeildar
Dagskrá

Almenn mál

1.26033712 - Kynning á rannsókn um áhrif heimaæfinga á hreysti og velsæld eldra fólks

Á fundinn mættu Elísa Víf Kristínardóttir og Freydís Eiríksdóttir og kynntu fyrir nefndinni rannsókn á áhrifum heimaæfinga á hreysti og velsæld eldra fólks. Rannsóknin fór fram á síðasta ári í samstarfi Virkni og Vellíðan, Velferðasviðs og Háskólans í Reykjavík.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Elísu Víf Kristínardóttur og Freydísi Eiríksdóttur fyrir góða kynningu.

Almenn mál

2.26033544 - Framkvæmdir og viðhald íþróttamannvirkja 2026

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir helstu framkvæmdar- og viðhaldsverkefni á íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2026.
Lagt fram.

Aðsend erindi

3.26032573 - Áskorun um endurskoðun á reglum um Afrekssjóð

Lagt fram erindi frá Hákoni Ágústssyni og Þóru Kristínu Bjarnadóttur, dags. 13. mars 2026, þar sem óskað er eftir lýðheilsu- og íþróttanefnd endurskoði reglur sínar um Afrekssjóð.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar fyrir erindið. Reglur nefndarinnar eru í sífeldri endurskoðun og verður ábendingin tekin til skoðunar við næstu endurskoðun reglna.

Önnur mál

4.2209435 - Heimsóknir til íþróttafélaga 2022 - 2026

Hnefaleikafélag Kópavogs heimsótt í félagsaðstöðu á Smiðjuvegi.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Hnefaleikafélagi Kópavogs fyrir góða kynningu.

Fundi slitið - kl. 18:15.