Lýðheilsu- og íþróttanefnd

12. fundur 07. maí 2026 kl. 16:00 - 17:50 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Sverrir Kári Karlsson formaður
  • Helgi Ólafsson aðalmaður
  • Sunna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Thelma Bergmann Árnadóttir aðalmaður
  • Matthías Hjartarson áheyrnarfulltrúi
  • Andrés Pétursson áheyrnarfulltrúi
  • Þorvar Hafsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Gunnar Guðmundsson
  • Ana Tepavcevic
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir
Fundargerð ritaði: Gunnar Guðmundsson deildarstjóri íþróttadeildar
Dagskrá

Almenn mál

1.2605055 - Kynning og umræður um lýðheilsumál

Á fundinn mætti Anna Elísabet Ólafsdóttir, lýðheilsufræðingur, sem kynnti og ræddi lýðheilsumál við nefndina.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Önnu Elísabetu Ólafsdóttur fyrir góða kynningu.

Aðsend erindi

2.2604901 - Ósk um heimild til nafngiftar á Kópavogsvelli í auglýsingaskyni

Lagt fram erindi frá aðalstjórn Breiðabliks, dags. 30. mars 2025, þar sem óskað er eftir samþykki lýðheilsu- og íþróttanefndar til nafngiftar á Kópavogsvelli.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir erindið í samræmi við 6. grein Reglna um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar og felur deildarstjóra íþróttadeildar og fulltrúa eignadeildar bæjarins að vinna málið með félaginu.

Iðkendastyrkir

3.26041641 - Iðkendastyrkir 2026

Lögð fram tillaga íþróttadeildar að úthlutun iðkendastyrkja lýðheilsu- og íþróttanefndar fyrir árið 2026.
Lagt fram.

Iðkendastyrkir

4.2604757 - Breiðablik - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 11.056.300
Styrkurinn skiptist eftirfarandi niður á deildir félagsins:

Frjálsíþróttadeild: kr. 433.128,-
Hjólreiðadeild: kr. 0,-
Hlaupadeild: kr. 0,-
Íþróttaskóli: kr. 197.342,-
Karatedeild: kr. 184.528,-
Körfuknattleiksdeild: kr. 2.047.748,-
Knattspyrnudeild: kr. 6.850.600,-
Kraftlyftingadeild: kr. 15.377,-
Rafíþróttadeild: kr. 338.301,-
Skíðadeild: kr. 110.204,-
Sunddeild: kr. 497.200,-
Skákdeild: kr. 161.462,-
Taekwondodeild: kr. 189.654,-
Þríþrautadeild: kr. 30.755,-

Iðkendastyrkir

5.2604762 - HK - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 8.065.409,-
Styrkurinn skiptist eftirfarandi niður á deildir félagsins:

Bandýdeild: kr. 243.474,-
Blakdeild: kr. 1.027.718,-
Borðtennisdeild: 97.390,-
Dansdeild: kr. 397.248,-
Handknattleiksdeild: kr. 2.401.426,-
Íþróttaskóli kr. 28.192,-
Knattspyrnudeild: kr. 3.869.961,-

Iðkendastyrkir

6.2604759 - Gerpla - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 7.496.448,-

Iðkendastyrkir

7.2604761 - GKG - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 2.075.939,-

Iðkendastyrkir

8.2604767 - Sprettur - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 715.046,-

Iðkendastyrkir

9.2604768 - TFK - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 945.706,-

Iðkendastyrkir

10.2604758 - DÍK - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 568.961,-

Iðkendastyrkir

11.26043409 - Hvönn - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 899.574,-

Iðkendastyrkir

12.2604769 - TKD - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 233.223,-

Iðkendastyrkir

13.2604764 - PFK - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 328.050,-

Iðkendastyrkir

14.2604756 - Boginn - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 1.117.419,-

Iðkendastyrkir

15.2604763 - Íþróttafélagið Ösp - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 51.258,-

Iðkendastyrkir

16.2604765 - Siglingafélagið Ýmir - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 38.443,-

Iðkendastyrkir

17.2604754 - HFK - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 676.602,-

Iðkendastyrkir

18.2604766 - Skotíþróttafélag Kópavogs - Umsókn um iðkendastyrk 2026

Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð kr. 143.522,-

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

19.26041642 - Umsóknir um æfingatíma í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2026-2027

Lögð fram samantekt á þeim umsóknum sem borist hafa nefndinni frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur. Í samantektinni koma fram óskir félaga og deilda sem sendar voru inn og tillögur íþróttadeildar að afgreiðslu þeirra.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir framlagðar tillögur íþróttadeildar og vísar til dagskrárliða 20-32 til nánari glöggvunar.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

20.26041998 - Breiðablik - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lagðar fram umsóknir aðalstjórnar Breiðabliks dags. 13. apríl, þar sem félagið sækir um æfingatíma fyrir fjórar deildir, en það eru körfuknattleiks-, skíða-, sund-, og taekwondodeild.
Ekki er hægt að verða við öllum óskum félagsins en lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir eftirfarandi tíma:
Alls 9 tíma í Fagralundi samkvæmt töflu sem fyrst og fremst eru til körfuknattleiksdeildar.
Alls 21 tíma í íþróttahúsi Kársnesskóla samkvæmt töflu fyrir körfuknattleik.
Alls 12 tíma í Íþróttahúsi Lindaskólaskóla samkvæmt töflu fyrir TKD-, körfu og skíðadeild.
Knattspyrnudeild fær úthlutað samkvæmt ramma til úthlutunar.
Hægt er að verða við óskum sunddeildar um tíma í Salalaug.
Hægt er að verða að mestu við óskum sunddeildar í Kópavogslaug en með fyrirvörum þar sem tímatöflur vegna skólasunds liggja ekki fyrir:
Ekki er hægt að lofa fimm brautum frá klukkan 15:00 (tímar 15:00 - 21:30 (19:30)) í stóru innilauginni á virkum dögum ef skólasundið þarf það pláss. Ekki er hægt að lofa aðgangi að kennslulauginni frá klukkan 14:00 eða 15:00 á mánu-, þriðju-, miðviku- og fimmtudögum (tímar 14:30 - 18:30 og 15:30 - 18:00). Skólasundi er mögulega ekki lokið svo snemma á þessum dögum.
Varðandi útilaugina þá eiga æfingatímar að ganga upp, en þó með þeim fyrirvara að Garpar og þríþrautadeild haldi sig við núverandi æfingatíma á mánu- og miðvikudögum klukkan 19:30 til 20:30. Sunddeildin þarf að hafa samráð við Garpa og Þríþrautadeild varðandi tíma í 50 m laug. Óskað er eftir að sunddeildin hafi samráð við forstöðumenn sundlauganna áður en gengið er frá æfingatöflunum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

21.26041994 - HK - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn aðalstjórnar HK dags. 13. apríl, þar sem félagið sækir um æfingatíma fyrir fimm deildir, en það eru knattspyrnu-, bandý-, blak-, borðtennis- og handknattleiksdeild.
Ekki er hægt að verða við öllum óskum félagsins en lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir eftirfarandi tíma:
Alls 41 tíma í Fagralundi samkvæmt töflu sem fyrst og fremst eru til blakdeildar.
Alls 54 tíma í Digranesi fyrir handknattleiks-, blak,- og bandýdeild.
Alls 4 tíma í Íþróttahúsi Kársnesskóla samkvæmt töflu fyrir handknattleik.
Alls 2 tíma í Íþróttahúsi Lindaskóla samkvæmt töflu fyrir bandý.
Alls 3,5 tíma í Íþróttahúsi Kópavogsskóla samkvæmt töflu fyrir bandý.
Alls 17,5 tíma í Íþróttahúsi Snælandsskóla samkvæmt töflu fyrir borðtennis,- og bandýdeild.
Ekki er hægt að verða við óskum knattspyrnudeildar um tíma frá 20:00-21:00 á mánu- og miðvikudögum í Kórnum. Hægt er að verða við óskum deildarinnar um tíma frá 18:00 - 20:00 á laugardögum. Að auki fær deildin úthlutað tímum á gervigrasinu úti við Kórinn frá kl. 21:00 - 22:00 alla virka daga og eftir kl. 17:00 um helgar. Þessi úthlutun er tímabundin og verður endurskoðuð þegar nýr keppnisvöllur verður tekin í notkun í tengslum við stúkubyggingu.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

22.26042000 - Gerpla - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn aðalstjórnar Gerplu dagsett 7. apríl, þar sem óskað er eftir fullum afnotum af Versölum og Íþróttahúsi Vatnsendaskóla.
Samþykkt að veita félaginu þá tíma sem félagið óskar eftir í Íþróttahúsi Versala- og Vatnsendaskóla.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

23.26042003 - Íþróttafégaið Glóð - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Íþróttafélaginu Glóð, dagsett 12. apríl, þar sem óskað er eftir tímum í Íþróttahúsi Lindaskóla.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir tíma á þriðjudögum kl. 16:00 - 17:00 og fimmtudögum 17:00 - 18:00 í Íþróttahúsi Lindaskóla.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

24.26042010 - DÍK - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Dansíþróttafélagi Kópavogs, dagsett 19. mars, þar sem óskað er eftir tímum á miðvikudögum í Íþróttahúsi Kópavogsskóla frá kl. 17:00 -20:00.
Lýðheilsu- og þróttanefnd samþykkir tíma á miðvikudögum frá kl. 17:00 - 20:00 í Íþróttahúsi Kópavogsskóla.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

25.26051401 - Hvönn - Umsókn um æfingatíma

Lögð fram umsókn frá Dansíþróttafélaginu Hvönn, dagsett 3. maí, þar sem óskað er eftir tímum í Íþróttahúsi Kópavogs- og Lindaskóla.
Ekki er hægt að verða við óskum félagsins um tíma í Lindaskóla nema á laugardögum frá 9:00-11:00 eða 13:00-16:00. Félagið getur fengið tíma í Íþróttahúsi Kópavogsskóla á mánudögum 17:00-19:00, miðvikudögum 15:00-17:00, fimmtudögum 15:00-20:00 og laugardögum 12:00-16:00. Að öðru leiti ráðstafar félagið sínum tímum í danssalnum í Ögurhvarfi.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

26.26042011 - Skotíþróttafélag Kópavogs - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Skotíþróttafélagi Kópavogs, dags. 16. mars, þar sem óskað er eftir tveimur helgum í Íþróttahúsi Digranes undir keppni.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir óskir félagsins um tvær helgar í íþróttasal Digranesi til mótahalds.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

27.26042015 - PFK - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Pílufélagi Kópavogs, dagsett 16. mars, þar sem óskað er eftir tímum í Vestursal Íþróttahúss Digranes.
Hægt er að verða við óskum félagsins um tíma í Vestursalnum með þeim fyrirvara að opnun hússins verði til kl. 23:00. Á laugardögum verða æfingar félagsins að hefjast eftir kl. 11:00.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

28.26042014 - Knattspyrnufélagið Ísbjörninn - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Ísbirninum, dagsett 16. mars, þar sem óskað er eftir 3 tímum á viku fyrir Futsal lið félagsins í Digranesi.
Hægt er að verða við óskum félagsins um 3 tímum á viku frá kl. 22:00-23:00 í Digranesi og möguleika á fjórða tíma í undirbúningi fyrir Íslandsmót. Úthlutun á tímum á sumarönn þarf að vera í samráði við forstöðumann Digranes.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

29.26042001 - KM - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Knattspyrnufélaginu Miðbæ (KM), dagsett 30. mars, þar sem óskað er eftir tímum fyrir mfl. karla í futsal í Íþróttahúsi Fagralundi og í knattspyrnu á gervigrasi í Fagralundi.
Félagið fær úthlutað 3 tímum á viku frá kl. 22:00-23:00 í Íþróttahúsi Fagralundi fyrir Futsal. Einnig er hægt að verða við óskum félagsins um 3 tíma á gervigrasinu í Fagralundi frá kl. 21:00 á virkum dögum og frá kl. 17:00 á sunnudögum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

30.26042002 - Stál-úlfur - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð er fram umsókn frá Stál-Úlfi, dags. 12. apríl, þar sem óskað er eftir tímum fyrir körfu- og knattspyrnudeild félagsin á komandi vetri.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd samþykkir eftirfarandi:
Félagið fær úthlutað 2 tímum á viku frá kl. 19:00 - 20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum í Lindaskóla. Mögulegt er að auka við tímann eftir áramót þegar skíðadeild sleppir sínum tímum. Deildin fær einnig úthlutað í Kársnesskóla á föstudögum 20:00 -21:30 og á sunnudögum 17:00 - 19:00. Félagið fær áfram úthlutað keppnistíma frá kl 15:00 - 19:00 á sunnudögum í Fagralundi.
Hægt er að verða við ósk félagsins um tíma á sunnudögum eftir kl. 17:00 á gervigrasinu á Fífuvöllum eða Fagralundi

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

31.26041999 - Krikketklúbbur Kópavogs - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Kriketklúbbi Kópavogs, dags 13. apríl 2025, þar sem óskað er eftir að fá grassæfingasvæði í Fagralundi til afnota undir krikketmót alla laugar- og sunnudaga í ágúst frá kl. 10:00 - 18:00.
Ekki er hægt að verða við óskum félagsins.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

32.26042012 - Signlingafélagið Ýmir - Umsókn um æfingatíma 2026-2027

Lögð fram umsókn frá Siglingafélaginu Ými, dagsett 17. mars, um áframhaldandi afnot af húsnæði og aðstöðu við Naustavör.
Félagið verður áfram með óbreytta aðstöðu við Naustvör.

Önnur mál

33.2605196 - Fyrirspurn um hvaða kröfur Kópavogsbær gerir til aðila sem halda frístunda- og íþróttanámskeið

Lögð fram fyrirspurn frá Andrési Péturssyni, dags. 22. apríl, þar sem óskað er eftir upplýsingum um með hvaða hætti Kópavogsbær athugar hvort aðilar sem halda íþrótta- og frístundanámskeið séu með réttindi og reynslu til að halda slík námskeið fyrir börn.
Lagt fram svarbréf frá deildarstjóra íþróttadeildar við fyrirspurninni.

Fundi slitið - kl. 17:50.