Menningar - og mannlífsnefnd

5. fundur 14. maí 2025 kl. 08:15 - 09:45 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir formaður
  • Jónas Skúlason aðalfulltrúi
  • Helga Hauksdóttir varaformaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir aðalfulltrúi
  • Indriði Ingi Stefánsson aðalfulltrúi
  • Ísabella Leifsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Vilborg Soffía Karlsdóttir
Fundargerð ritaði: Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála
Dagskrá

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

1.25021612 - Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Óskað er eftir 200.000 króna styrk til tveggja tónskálda vegna smíði nýrra verka sem flutt verða á útgáfutónleikum Dúó Freyju í Salnum á þessu ári.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Dúó Freyju kr. 200.000 vegna smíði tveggja nýrra tónverka.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

2.25043309 - Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Lionsklúbbur Kópavogs óskar eftir styrk að upphæð kr. 500.000 til kaupa og varðveislu á kvikmynd Marteins Sigurgeirssonar um Kópavogsbúið og endurbyggingu þess.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir að veita Lionsklúbbi Kópavogs kr. 250.000 til kaupa og varðveislu á kvikmyndinni, með hjásetu Margrétar Tryggvadóttur og Indriða Inga Stefánssonar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

3.25033876 - Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Ástráður, kynfræðslufélag læknanema, óskar eftir styrk að upphæð kr. 250.000 vegna fræðsluverkefnis fyrir menntaskólanema.
Menningar- og mannlífsnefnd getur ekki orðið við beiðninni.

Frestuð erindi

4.24041107 - Endurskoðuð stofnskrá Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Tillögur að breytingum að stofnskrá Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir framlagða stofnskrá. Nefndin leggur jafnframt til að Náttúrusafn Kópavogs verði í daglegu tali og öllu markaðsefni nefnt Náttúrusafnið.

Aðsend erindi

5.25033097 - Fyrirspurn um styttur í bæjarlandinu

Svar við fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar um útilistaverk í bæjarlandinu.
Lagt fram.

Almenn mál

6.2505086 - Bæjarlistamaður Kópavogs 2025

Val á Bæjarlistamanni Kópavogs 2025.
Menningar- og mannlífsnefnd hefur komist að samkomulagi um val á bæjarlistamanni og verður tilkynnt um valið föstudaginn 23. maí.

Fundi slitið - kl. 09:45.