Menningar - og mannlífsnefnd

11. fundur 04. febrúar 2026 kl. 08:15 - 11:00 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir formaður
  • Jónas Skúlason aðalfulltrúi
  • Helga Hauksdóttir varaformaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir aðalfulltrúi
  • Indriði Ingi Stefánsson aðalfulltrúi
  • Ísabella Leifsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Kolbeinn Reginsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Guðmundur Gunnarsson, aðalmaður boðaði forföll og Soumia I. Georgsdóttir vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Vilborg Soffía Karlsdóttir
Fundargerð ritaði: Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála
Dagskrá

Málefni menningarstofnana í Kópavogi

1.2302367 - Söfnunarsjóður fyrir útilistaverk

Val á nýju útilistaverki í Kópavogi.
Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að taka málið áfram samkvæmt hugmyndum ráðgjafanefndar og í samtali við umhverfissvið og forstöðumann Gerðarsafns. Nefndin leggur áherslu á að horft verði til allra hverfa bæjarins við val á staðsetningu verksins. Jafnframt brýnir nefndin fyrir bæjarstjórn að gert sé ráð fyrir list í almannarými í nýjum hverfum bæjarins.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

2.25093373 - Beiðni um framlag menningar- og mannlífsnefndar til sameiginlegra viðburða menningarhúsanna 2026

Beiðni um framlag nefndarinnar til menningarhúsanna árið 2026.
Nefndin samþykkir að veita menningarhúsunum og viðburðum á vegum málaflokksins framlag að upphæð kr. 30.050.000 skv. hjálagðri beiðni.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

3.2511188 - Styrkbeiðni vegna ritunar á sögu Breiðabliks í tilefni 80 ára afmælis félagsins

Erindi frá bæjarráði. Breiðablik sækir um 6.000.000 kr. styrk til ritunar sögu félagsins.
Nefndin telur verkefnið spennandi þrátt fyrir að það falli ekki að reglum sjóðsins. Nefndin vísar beiðninni til lýðheilsu- og íþróttanefndar.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

4.25111267 - Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Félag heyrnalausra sækir um 800.000 kr. styrk vegna Norrænnar menningarhátíðar á Selfossi sumarið 2026.
Nefndin getur því miður ekki orðið við beiðninni.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

5.25112236 - Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Mæðrastyrksnefnd Kópavogs sækir um 1.000.000 kr. styrk til að aðstoða skjólstæðinga sína.
Nefndin getur því miður ekki orðið við beiðninni.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

6.25103328 - Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Einstaklingur óskar eftir 1.600.000 kr. styrk vegna 3-4 útiviðburða í Kópavogi sumarið 2026.
Nefndin getur því miður ekki orðið við beiðninni og bendir umsækjanda á umsóknarfrest aðalúthlutunar sjóðsins.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

7.26012432 - Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Ungikór, Landssamtök barna- og ungmennakóra á Íslandi sækir um 825.000 kr. styrk vegna lokatónleika í Kópavogi í maí 2026.
Nefndin samþykkir að veita Ungikór styrk að upphæð kr. 250.000 til tóleikahalds.

Styrkbeiðnir - Menningarviðburðir- og verkefni

8.26013161 - Umsókn um styrki frá menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar

Sirkushópur sækir um 330.000 kr. styrk til að halda sirkussýningu í Kópavogi.
Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að finna hópnum stað í dagskrá menningarhúsanna.

Aðsend erindi

9.26011532 - Kópavogsblótið hætt. Af hverju

Fyrirspurn vegna Kópvogsblóts.
Nefndin þakkar fyrir góða ábendingu sem var rædd í nefndinni.

Almenn mál

10.2601486 - 17. júní 2026

Málefni 17. júní hátíðarhalda í Kópavogi.
Nefndin vill halda umræðunni áfram með gögnum um kosti og galla hátíðarinnar.

Almenn mál

11.2601534 - Menningarmiðstöð

Vettvangsferð nefndarmanna vegna nýrrar menningarmiðstöðvar.
Nefndarmenn þakka góða kynningu og móttöku hjá Heimum í Smáralind þar sem áform um nýja menningarmiðstöð voru kynnt.

Fundi slitið - kl. 11:00.