Menntaráð

157. fundur 17. febrúar 2026 kl. 16:30 - 18:30 í Kóraskóla
Fundinn sátu:
  • Hanna Carla Jóhannsdóttir formaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir aðalmaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Sverrir Kári Karlsson varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Björn Þór Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Tryggvi Felixson aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir starfsmaður menntasviðs
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá

Almenn erindi

1.25112817 - Heimsókn menntaráðs í grunnskóla Kópavogs - Kóraskóli

Inga Fjóla Sigurðardóttir, skólastjóri Kóraskóla, og Sindri Þór Ágústsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvar, taka á móti menntaráði og ræða áhugaverða þætti í skólastarfinu og samstarfið sín á milli um nálgun við nemendur.
Ingu Fjólu Sigurðardóttur, skólastjóra Kóraskóla, og Sindra Þór Ágústssyni, forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar Kúlunnar, er þökkuð góð kynning.

Umræður.

Inga Fjóla og Sindri Þór víkja af fundi kl. 16:59.

Gestir

  • Inga Fjóla Sigurðardóttir, skólastjóri Kóraskóla
  • Sindri Þór Ágústsson, forstöðumaður Kúlunnar, félagsmiðstöðvar

Almenn erindi

2.24122039 - Starfsáætlanir skóla- og frístundastarfs við grunnskóla Kópavogs - viðmið 2025-2030

Málið var lagt fyrir fund menntaráðs 3. febrúar 2026 og var frestað til frekari gagnaöflunar. Málið er nú lagt fyrir að nýju ásamt umsögn foreldraráðs skólans.



Tillaga um tilfærslu á skipulagsdegi frístundar 2025-2026 í Barnaskóla Kársness lögð fram til samþykktar.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tilfærslu á skipulagsdegi frístundar Barnaskóla Kársness. Menntaráð leggur áherslu á að hér sé um undanþágu að ræða vegna sérstakra aðstæðna.

Almenn erindi

3.2101814 - Menntasvið-Menntastefna 2020-2030

Aðgerðaáætlun menntasviðs 2026 lögð fram til samþykktar.
Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti aðgerðaráætlun menntasviðs 2026.

Menntaráð samþykkir aðgerðaráætlun menntasviðs 2026 með öllum greiddum atkvæðum.

Almenn erindi

4.25042761 - Ungmennaþing 2025

Svör við tillögum Barna- og ungmennaþings 2025 lögð fram til kynningar.



Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti svör við tillögum Barna- og ungmennaþings Kópavogs.

Amöndu er þökkuð góð kynning.

Gestir

  • Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri á menntasviði

Almenn erindi

5.25021357 - Barnaþing Kópavogs 2025

Svör við tillögum Barna- og ungmennaþings 2025 lögð fram til kynningar.



Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti svör við tillögum Barna- og ungmennaþings Kópavogs.

Amöndu er þökkuð góð kynning.

Almenn erindi

6.26022213 - Kópurinn 2026

Kópurinn 2026, viðurkenning menntaráðs vegna skóla- og frístundastarfs, lagður fram til kynningar.
Viðurkenning menntaráðs Kópavogs til grunnskóla- og frístundastarfs á vegum Kópavogsbæjar 2026 lögð fram til kynningar.

Menntaráð kýs þriggja manna valnefnd:
Hanna Carla Jóhannsdóttir fyrir hönd meirihluta.
María Ellen Steingrímsdóttir fyrir hönd minnihluta.
Karen Rúnarsdóttir fyrir hönd foreldra.

Formaður valnefndar er: Hanna Carla Jóhannsdóttir

Fundi slitið - kl. 18:30.