Menntaráð

158. fundur 03. mars 2026 kl. 16:30 - 18:30 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hanna Carla Jóhannsdóttir formaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir aðalmaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir aðalmaður
  • Björn Þór Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Tryggvi Felixson aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Kristgerður Garðarsdóttir aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Halla Björg Evans varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Sigrún Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir starfsmaður menntasviðs
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá

Almenn erindi

1.26021323 - Nemendagrunnur

Nemendagrunnur Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu kynntur.

Jakobi Sindra Þórssyni er þökkuð góð kynning á nemendagrunni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Jakob Sindri víkur af fundi kl. 16:50.

Umræður.

Gestir

  • Jakob Sindri Þórsson, teymisstjóri stafrænnar þróunar - mæting: 16:30

Almenn erindi

2.26023485 - Matsferill Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

Matsferill Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu kynntur.
Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri upplýsingatækni í skólastarfi og Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar, kynntu almennar og tæknilegar útfærslur Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu við framkvæmd Matsferils.

Bergþóru og Ingibjörgu Ýri er þökkuð góð kynning.

Bergþóra víkur af fundi kl. 17:40.

Umræður.

Gestir

  • Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri UT - mæting: 16:50

Almenn erindi

3.26023486 - Lestur á mörkum skólastiga - rannsókn

Lestur á mörkum skólastiga - fyrstu niðurstöður rannsóknar lagðar fram til kynningar.
Elínu Guðrúnu Pálsdóttur og Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur er þökkuð góð kynning á fyrstu niðurstöðum rannsóknar sinnar um lestur á mörkum skólastiga.

Elín Guðrún og Sigurlaug Rún víkja af fundi kl. 18:00.

Umræður.

Gestir

  • Elín Guðrún Pálsdóttir, leikskólaráðgjafi - mæting: 17:40
  • Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, kennsluráðgjafi - mæting: 17:40

Almenn erindi

4.26022644 - Undirbúningur reksturs leiks- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi

Lagt fram til upplýsinga erindi frá bæjarstjóra dags. 27. febrúar 2026, vegna mögulegs rekstrarfyrirkomulags samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi.
Lagt fram til kynningar.

Umræður.

Bókun:
Menntaráð þakkar bæjarstjóra fyrir veittar upplýsingar. Jafnframt er óskað eftir því að menntasvið taki saman minnisblað um helstu álitaefni, kosti og galla, er felast í því að gera samning við sjálfstætt starfandi rekstraraðila á grunnskóla í Vatnsendahvarfi.

Minnisblaðið verði lagt formlega fyrir menntaráð til frekari umfjöllunar.

Gestir

  • Pálmi Þór Másson, bæjarritari - mæting: 18:10
  • Steinn Sigríðar Finnbogason, yfirlögfræðingur - mæting: 18:10

Almenn erindi

5.2212548 - Skemmtilegri grunnskólalóðir

Tillaga að framkvæmdum á grunnskólalóðum á árinu 2026 lögð fram til samþykktar.



Friðriki Baldurssyni eru þökkuð góð og vönduð vinnubrögð við skrif skýrslu vegna endurnýjunar skólalóða undanfarinn áratug.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum framlagða tillögu um endurbætur á skólalóðum Vatnsendaskóla, Álfhólsskóla - Hjalla og Kársnesskóla á árinu 2026.

Fundi slitið - kl. 18:30.