Menntaráð

159. fundur 17. mars 2026 kl. 16:30 - 19:40 í Barnaskóla Kársness
Fundinn sátu:
  • Hanna Carla Jóhannsdóttir formaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir aðalmaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir aðalmaður
  • Björn Þór Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Tryggvi Felixson, aðalmaður boðaði forföll og Hreiðar Oddsson varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • María Ellen Steingrímsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir starfsmaður menntasviðs
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá

Almenn erindi

1.25112817 - Heimsókn menntaráðs í grunnskóla Kópavogs

Heimsókn menntaráðs í grunnskóla Kópavogs - Barnaskóli Kársness.
Gerður Magnúsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Kársness, fór með menntaráð um skólann og sagði frá byggingunni. Gerði er þökkuð góð kynning.

Umræður.

Gestir

  • Gerður Magnúsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Kársness - mæting: 16:30

Almenn erindi

2.2508729 - Framtíðin í fyrsta sæti - grunnskólatillögur

Viðbragðsáætlun vegna grunnskólatillögu nr. 15, Náms- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan, lögð fram til samþykktar.
Silju Dís Guðjónsdóttur, Tryggva Guðjóni Ingasyni og Ingibjörgu Ýri Pálmadóttur er þökkuð góð kynning á viðbragðsáætlun í skóla- og frístundastarfi.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum viðbragðsáætlun í náms- og starfsumhverfi grunnskóla sem styður við öryggi og vellíðan.

Umræður.

Silja Dís og Tryggvi Guðjón viku af fundi kl. 17:45.

Gestir

  • Tryggvi Guðjón Ingason, verkefnastjóri skólaþjónustu - mæting: 16:50
  • Silja Dís Guðjónsdóttir, klínískur atferlisráðgjafi - mæting: 16:50

Almenn erindi

3.26022644 - Undirbúningur reksturs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi

Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.



Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.
Pálmi Þór Másson, Steinn Sigríðar Finnbogason og Sindri Sveinsson víkja af fundi kl. 18:45.

Umræður

Fundarhlé hófst kl. 18:45, fundi fram haldið kl. 19:10.

Dagskrártillaga:
“Lagt er til að málinu verði frestað til næsta fundar menntaráðs."

Björn Þór Rögnvaldsson
Hreiðar Oddsson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Dagskrártillögu um frestun hafnað með fjórum atkvæðum gegn atkvæðum Björns Þór Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Bókun:
"Undirrituð telja ekki tímabært að undirrita viljayfirlýsingu um rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi á þessu stigi máls. Ekki liggja fyrir nauðsynlegar valkostagreiningar og ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir samningsmarkmiðum sveitarfélagsins. Því liggja ekki fyrir þær upplýsingar sem þarf til að meta hvort að það að fara í umræddar viðræður sé gert á málefnalegum og faglegu grunni.

Jafnframt er það verulegt áhyggjuefni að sveitarfélagið skuli ganga til viðræðna við einn tiltekinn aðila án þess að öðrum hafi verið gefinn kostur á að koma að borðinu. Með því er ekki aðeins komið í veg fyrir að hægt sé að bera saman ólíkar leiðir áður en afstaða er tekin, heldur vakna einnig spurningar um hvort jafnræðis sé gætt með fullnægjandi hætti við undirbúning málsins. Undirrituð telja því að áður en til undirritunar viljayfirlýsingar kemur þurfi að liggja fyrir opnari og vandaðri undirbúningur málsins.

Björn Þór Rögnvaldsson
Hreiðar Oddsson
María Ellen Steingrímsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir


Bókun:
“Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.
Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

Hanna Carla Jóhannsdóttir
Hildur Karen Sveinbjarnardóttir
Jónas H. T. Einarsson
Hjördís Einarsdóttir


Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti viljayfirlýsingu milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. með fjórum atkvæðum og hjásetu Björns Þórs Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Gestir

  • Pálmi Þór Másson, bæjarritari - mæting: 17:45
  • Sindri Sveinsson, áhættu- og fjárstýringarstjóri - mæting: 17:45
  • Steinn Sigríðar Finnbogason, yfirlögfræðingur - mæting: 17:45

Almenn erindi

4.26031621 - Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi starfsemi félagsmiðstöðva

Svar við fyrirspurn lagt fram.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að málinu sé frestað til næsta fundar.

Almenn erindi

5.26031611 - Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi húsnæðismál skóla

Svar við fyrirspurn lagt fram.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að málinu sé frestað til næsta fundar.

Fundi menntaráðs lauk kl. 19:40.

Fundi slitið - kl. 19:40.