Menntaráð

160. fundur 07. apríl 2026 kl. 16:30 - 18:30 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hanna Carla Jóhannsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Hjördís Ýr Johnson , sat fundinn í hans stað.
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir aðalmaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir aðalmaður
  • Björn Þór Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Tryggvi Felixson aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir starfsmaður menntasviðs
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá

Almenn erindi

1.26031792 - Menntasvið - Þróun frístundastarfs félagsmiðstöðva

Kynning á þróun frístundastarfs félagsmiðstöðva.
Victori Berg Guðmundssyni, deildarstjóra frístundadeildar, er þökkuð góð kynning á þróun frístundastarfs félagsmiðstöðva í Kópavogi.

Umræður.

Menntaráð fagnar auknum opnunartíma félagsmiðstöðva í Kópavogi.

Victor Berg kemur inn á fund kl. 16:45.

Gestir

  • Victor Berg Guðmundsson, deildarstjóri frístundadeildar, - mæting: 16:45

Almenn erindi

2.26031621 - Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi starfsemi félagsmiðstöðva

Erindi frestað á síðasta fundi menntaráðs og vísað til næsta fundar.
Svar við fyrirspurn Björns Þórs Rögnvaldssonar um opnunartíma, starfsemi og mönnun félagsmiðstöðva í Kópavogi lagt fram.


Umræður.

Victor Berg Guðmundsson vék af fundi kl. 17:25.

Gestir

  • Victor Berg Guðmundsson, deildarstjóri frístundadeildar

Almenn erindi

3.26031611 - Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi húsnæðismál skóla

Erindi frestað á síðasta fundi menntaráðs og vísað til næsta fundar.



Svar við fyrirspurn Björns Þórs Rögnvaldssonar varðandi húsnæðismál Kópavogsskóla lagt fram.

Bókun frá Birni Þór Rögnvaldssyni: Undirritaður þakkar gott svar frá menntasviði og hvetur til góðrar upplýsingagjafar til foreldra varðandi myglu í skólanum. Lýst er áhyggjum yfir því að engin aðstaða er fyrir skólabókasafn í Kópavogsskóla, en mikilvægt er að sveitarfélagið skaffi börnum jöfn tækifæri hvað varðar aðgengi að bókum í skólum, en nú er svo ástatt að a.m.k. tveir grunnskólar í sveitarfélaginu eru án aðstöðu fyrir bókasafn.

Bókun frá meirihlutanum: Meirihluti menntaráðs bendir á að bókasöfn eru til staðar í öllum grunnskólum Kópavogs, utan tímabundinnar lokunar í Kópavogsskóla.
Meirihlutinn fagnar jafnframt fjölbreyttum útfærslum bókasafna skólanna, enda hlýtur lokamarkmiðið að vera að hvetja til aukins lesturs barna.

Almenn erindi

4.2503912 - Barnasáttmálinn 2025-2027

Kynning á aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags.
Amöndu K. Ólafsdóttur, skrifstofustjóra menntasviðs, er þökkuð góð kynning á Aðgerðaáætlun Barnvæns sveitarfélags 2025-2027 í Kópavogi.

Umræður.

Amanda K. Ólafsdóttir víkur af fundi kl. 16:45.

Gestir

  • Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs - mæting: 17:30

Almenn erindi

5.25012512 - Gervigreind í skólastarfi

Kynning á þróunarverkefni "Gervigreind - uppspretta nýrra tækifæra?" lögð fram.







Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri upplýsingatækni í skólastarfi, kynnir þróunarverkefni sem hlaut styrk úr Sprotasjóði í mars 2026.

Umræður.

Bergþóra Þórhallsdóttir kemur inn á fund kl. 17:50 og víkur af fundi kl. 18:25.

Gestir

  • Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri UT á grunnskóladeil - mæting: 17:40

Fundi slitið - kl. 18:30.