Menntaráð

161. fundur 21. apríl 2026 kl. 16:30 - 18:30 í Kársnesskóla
Fundinn sátu:
  • Hanna Carla Jóhannsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Andri Steinn Hilmarsson , sat fundinn í hans stað.
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir aðalmaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir aðalmaður
  • Björn Þór Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Tryggvi Felixson aðalmaður
  • María Ellen Steingrímsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir Sviðsstjóri menntasviðs
  • Bergþóra Þórhallsdóttir
Fundargerð ritaði: Bergþóra Þórhallsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá
Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi D lista sat fundinn í stað Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur D lista.

Almenn erindi

1.25112817 - Heimsókn menntaráðs í grunnskóla Kópavogs

Heimsókn menntaráðs í grunnsóla Kópavogs - Kársnesskóli
Menntaráð þakkar Björgvini Þór Þórhallssyni aðstoðarskólastjóra fyrir góðar móttökur og veitingar. Jafnframt þakkar ráðið Lindu Brá Hafsteinsdóttur kennara og nemendum hennar í 6. bekk fyrir frábæra kynningu á sögurammaverkefni þeirra um pláneturnar.

Almenn erindi

2.2304990 - Okkar skóli

Lagt fram til kynningar minnisblað og upplýsingar um framkvæmd og útfærslu á verkefninu Okkar skóli.
Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri menntasviðs, kynnti verkefnið og svaraði fyrirspurnum.

Amanda vék af fundi 17:45.

Gestir

  • Amanda K. Ólafsdóttir - mæting: 17:30

Almenn erindi

3.26022213 - Kópurinn 2026

Lagt fram til upplýsinga, kynningar á tilnefningum og viðurkenningum Kópsins 2026, viðurkenningu menntaráðs fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf.

Fulltrúar menntaráðs í valnefnd Kópsins fóru yfir verkefnin sem fengu viðurkenningu og gerðu grein fyrir hvernig staðið var að vali þeirra 7 verkefna sem fengu viðurkenningu, af þeim 35 sem tilnefnd voru.

Almenn erindi

4.26041870 - Erindi frá skólaráði Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis

Lagt fram erindi frá skólaráði Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis. Samhliða lagt fram minnisblað frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs.
Lagt fram og umræður.
Frekari umræðu frestað til næsta fundar. Menntaráð óskar eftir frekari gögnum og tillögu að svari til skólaráðs Snælandsskóla.

Fundi slitið - kl. 18:30.