Skipulags- og umhverfisráð

8. fundur 19. maí 2025 kl. 15:30 - 19:19 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson varaformaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson aðalfulltrúi
  • Helga Jónsdóttir aðalfulltrúi
  • Hákon Gunnarsson, aðalmaður boðaði forföll og Bergljót Kristinsdóttir varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Indriði Ingi Stefánsson áheyrnarfulltrúi
  • Leó Snær Pétursson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir skrifstofustjóri umhverfissviðs
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar, f.h. skipulagsfulltrúa
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2505005F - Bæjarstjórn - 1320. fundur frá 13.05.2025

2504008F - Skipulags- og umhverfisráð - 7. fundur frá 05.05.2025.

2412222 - Dalvegur 32A, B og C. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 7 atkvæðum og hjásetu Thelmu B. Árnadóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjörgu E. Egilsdóttur.

24061018 - Arnarnesvegur - 3. áfangi. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

2003236 - Borgarlínan í Kópavogi. Rammahluti. Breytt aðalskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2504017F - Bæjarráð - 3214. fundur frá 08.05.2025

2504008F - Skipulags- og umhverfisráð - 7. fundur frá 05.05.2025.

2412222 - Dalvegur 32A, B og C. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

24061018 - Arnarnesvegur - 3. áfangi. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

2003236 - Borgarlínan í Kópavogi. Rammahluti. Breytt aðalskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

3.2410796 - Fannborgarreitur. Byggingaráform.

Lögð fram að nýju í samræmi við skipulagsskilmála drög Nordic office of architecture f.h. lóðarhafa að byggingaráformum dags. 17. mars 2025. Einnig eru lögð fram uppfærð drög að aðkomuáætlun dags. 15. maí 2025, uppfærð drög að merkingaáætlun dags. 22. apríl 2025, frum-framkvæmdaáætlun ódags., og minnisblað um framkvæmdafasa dags. 14. maí 2025, unnið af Örugg verkfræðistofu.

Drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma voru kynnt á fundinum.

Grétar Snorrason og Hjalti Brynjarsson frá Nordic arkitektum, Elvar Ingi Jóhannesson frá Örugg verkfræðistofu, Jóhann Sindri Pétursson frá Landmótum og Eyrún Valþórsdóttir arkitekt gerðu grein fyrir erindinu.

Bergþóra Benediktsdóttir og Agnar Tr. Lemacks frá Aton, samskipta- og hönnunarstofu, gerðu grein fyrir drögum að samskiptaáætlun.

Díana Berglind Valbergsdóttir verkefnastjóri og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tóku sæti á fundinum undir þessum lið.
Fundarhlé kl. 17:58, fundi framhaldið kl. 19:05.

Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025. Afgreitt með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andra Steins Hilmarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Leós Snæs Péturssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Fyrirhuguð afgreiðsla málsins fer ekki saman við bókanir minni- og meirihluta ráðsins við mál 2410796 frá 17. mars 2025 sem gerðu ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila þegar byggingaráform lægju fyrir. Nú liggja áformin fyrir og til stendur að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar en kynningarfundir hafa ekki enn verið haldnir. Standa ætti við bókanir frá 17. mars 2025 og halda fundina áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.“
Indriði Ingi Stefánsson, Leó Snær Pétursson, Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.

Bókun:
„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu í kring og öðrum hagaðilum eins og segir í bókun meirihlutans frá 17. mars. Þar ávarpaði meirihlutinn að ekki væri tilefni til að halda upplýsingafund fyrr en byggingaráform lægju fyrir, en reikna má með því að þau verði samþykkt og liggi fyrir eftir næsta fund bæjarstjórnar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Byggingaráform sem nú eru kynnt fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur eru staðfesting á því hversu krefjandi deiliskipulag reitanna er í uppbyggingu. Byggingaráformin eru ekki tæk til afgreiðslu því enn hefur ekki tekist að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra á byggingartíma. Ekkert samráð hefur verið við íbúa í nágrenni uppbyggingarinnar sem verða fyrir dæmafáu raski á uppbyggingartíma. Ekkert samráð hefur heldur verið við hagsmunaaðila, eins og kirkjuna og menningarstofnanirnar, sem munu búa við að bílastæðum í grenndinni fækkar um marga tugi á uppbyggingartímanum. Verst er þó að ekkert hefur verið rætt við íbúa í Fannborg 1-9 en einu lausnirnar sem lagðar eru til fyrir aðgengi hreyfihamlaðra íbúa í húsunum og til að tryggja brunavarnir byggjast á samkomulagi við þá.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Mjög hefur verið vandað til undirbúnings þessa verkefnis enda er gengið lengra en skipulagslög kveða á um með því að taka byggingaráformin til umfjöllunar hjá ráðinu. Umrædd byggingaráform sem við höfum fengið til umfjöllunar samræmast deiliskipulagi. Ekki er hægt að ráðast í jafn umfangsmikla uppbyggingu og er framundan á Fannborgarreit og Traðarreit vestur öðruvísi en að eitthvað rask verði á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur lagt ríka áherslu á að slíkt rask verði lágmarkað eins og kostur er og að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Í ljósi upptalningar minnihlutans á meintum ágöllum byggingaráformanna er meirihlutanum skylt að koma því á framfæri að framkvæmdaaðila er gert að uppfylla ströng skilyrði fyrir aðkomu- og merkingaráætlun og sýna fram á að þeim sé mætt. Öðruvísi fæst ekki útgefið byggingarleyfi á framkvæmdina.“

„Í þeim gögnum sem liggja fyrir þessum fundi eru skilyrði fyrir aðgengi hreyfihamlaða ekki uppfyllt.“

„Byggingarfulltrúi mun ekki samþykkja byggingaráform nema lögum og skilyrðum sé fullnægt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Almenn erindi

4.2502435 - Traðareitur vestari. Byggingaráform.

Lögð fram að nýju í samræmi við skipulagsskilmála drög Nordic office of architecture f.h. lóðarhafa að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025 ásamt kynningu dags. 17. mars 2025 og drögum að sérteikningu lóðar dags. 30. apríl 2025.

Einnig eru lögð fram uppfærð drög að aðkomuáætlun dags. 15. maí 2025, uppfærð drög að merkingaáætlun dags. 22. apríl 2025, frum-framkvæmdaáætlun ódags., og minnisblað um framkvæmdafasa dags. 14. maí 2025, unnið af Örugg verkfræðistofu.

Drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma vorukynnt á fundinum.

Grétar Snorrason og Hjalti Brynjarsson frá Nordic arkitektum, Elvar Ingi Jóhannesson frá Örugg verkfræðistofu, Jóhann Sindri Pétursson frá Landmótum og Eyrún Valþórsdóttir arkitekt gerðu grein fyrir erindinu.

Bergþóra Benediktsdóttir og Agnar Tr. Lemacks frá Aton, samskipta- og hönnunarstofu, gerðu grein fyrir drögum að samskiptaáætlun.

Díana Berglind Valbergsdóttir og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tóku sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025. Afgreitt með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andra Steins Hilmarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Leós Snæs Péturssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Fyrirhuguð afgreiðsla málsins fer ekki saman við bókanir minni- og meirihluta ráðsins við mál 2410796 frá 17. mars 2025 sem gerðu ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila þegar byggingaráform lægju fyrir. Nú liggja áformin fyrir og til stendur að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar en kynningarfundir hafa ekki enn verið haldnir. Standa ætti við bókanir frá 17. mars 2025 og halda fundina áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.“
Indriði Ingi Stefánsson, Leó Snær Pétursson, Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.

Bókun:
„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu í kring og öðrum hagaðilum eins og segir í bókun meirihlutans frá 17. mars. Þar ávarpaði meirihlutinn að ekki væri tilefni til að halda upplýsingafund fyrr en byggingaráform lægju fyrir, en reikna má með því að þau verði samþykkt og liggi fyrir eftir næsta fund bæjarstjórnar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Byggingaráform sem nú eru kynnt fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur eru staðfesting á því hversu krefjandi deiliskipulag reitanna er í uppbyggingu. Byggingaráformin eru ekki tæk til afgreiðslu því enn hefur ekki tekist að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra á byggingartíma. Ekkert samráð hefur verið við íbúa í nágrenni uppbyggingarinnar sem verða fyrir dæmafáu raski á uppbyggingartíma. Ekkert samráð hefur heldur verið við hagsmunaaðila, eins og kirkjuna og menningarstofnanirnar, sem munu búa við að bílastæðum í grenndinni fækkar um marga tugi á uppbyggingartímanum. Verst er þó að ekkert hefur verið rætt við íbúa í Fannborg 1-9 en einu lausnirnar sem lagðar eru til fyrir aðgengi hreyfihamlaðra íbúa í húsunum og til að tryggja brunavarnir byggjast á samkomulagi við þá.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Mjög hefur verið vandað til undirbúnings þessa verkefnis enda er gengið lengra en skipulagslög kveða á um með því að taka byggingaráformin til umfjöllunar hjá ráðinu. Umrædd byggingaráform sem við höfum fengið til umfjöllunar samræmast deiliskipulagi. Ekki er hægt að ráðast í jafn umfangsmikla uppbyggingu og er framundan á Fannborgarreit og Traðarreit vestur öðruvísi en að eitthvað rask verði á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur lagt ríka áherslu á að slíkt rask verði lágmarkað eins og kostur er og að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Í ljósi upptalningar minnihlutans á meintum ágöllum byggingaráformanna er meirihlutanum skylt að koma því á framfæri að framkvæmdaaðila er gert að uppfylla ströng skilyrði fyrir aðkomu- og merkingaráætlun og sýna fram á að þeim sé mætt. Öðruvísi fæst ekki útgefið byggingarleyfi á framkvæmdina.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Í þeim gögnum sem liggja fyrir þessum fundi eru skilyrði fyrir aðgengi hreyfihamlaða ekki uppfyllt.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Byggingarfulltrúi mun ekki samþykkja byggingaráform nema lögum og skilyrðum sé fullnægt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Almenn erindi

5.2504777 - Lóð fyrir þjónustumiðstöð á Kjóavöllum. Upphaf skipulagsvinnu.

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2025 um heimild til að hefja vinnu við breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna lóðar fyrir þjónustumiðstöð Kópavogs. Um er að ræða svæði norðan við reiðhöllina við Hestheima og mun afmarkast af sveitarfélagsmörkum við Garðabæ, Markavegi, Hestheimum og lóð reiðhallarinnar. Rúmlega helmingur svæðisins er í dag ónýttur en tæplega helmingur er nýttur sem heygeymsla hluta úr ári. Að öðru leiti er svæðið vannýtt. Í aðalskipulagi Kópavogs er svæðið skilgreint sem ÍÞ-7 nýtt íþróttasvæði tengt hestaíþróttum á Heimsenda og Kjóavöllum. Svæðið var áður skilgreint sem verslun og þjónusta og var minna. Stærð svæðis um 3-4 ha. Afmarka þarf svæðið nánar og vinna deiliskipulag. Stærð 6 ha. Landnotkunarflokki á um það bil 1,7 ha mun verða breytt úr íþróttasvæði í samfélagsþjónustu sem samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er ætlað fyrir þjónustustofnanir ríkis, sveitarfélaga og eða annarra aðila. Uppfærsla á deiliskipulagi frá 2008 mun gerast samhliða breytingum á aðalskipulagi þar sem það verður fært nær nútímanum og raunverulegum aðstæðum á staðnum.

Einnig lagt fram erindi deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. apríl 2025 ásamt skýringarmynd af staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar.
Frestað.

Almenn erindi

6.23111613 - Ásbraut. Nýtt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni forkynningu tillaga á vinnslustigi að nýju deiliskipulagi Ásbrautar dags. 14. mars 2025. Markmið með deiliskipulagsvinnunni er að endurhanna göturými Ásbrautar til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi vegfarenda í samræmi við aðalskipulag Kópavogsbæjar. Með deiliskipulaginu er núverandi byggðarmynstur fest í sessi og lagðar skipulagslegar forsendur fyrir vistlegri götumynd og öruggari göngu- og hjólaleiðum. Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:500, dags. 14.mars 2025. Kynningartíma lauk 14.maí 2025. Lagðar eru fram athugasemdir og ábendingar sem bárust.
Skipulagsfulltrúa er falið að halda áfram vinnu við gerð tillögu að deiliskipulagi Ásbrautar á grundvelli framlagðrar tillögu á vinnslustigi og með hliðsjón af umsögnum, athugasemdum og ábendingum sem bárust á kynningartíma.

Almenn erindi

7.25041263 - Auðbrekka 7. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs dags. 10. apríl 2025 að breytingu á deiliskipulagi Auðbrekku - Þróunarsvæðis fyrir lóðina nr. 7 við Auðbrekku. Í breytingunni felst færsla á lóðarmörkum um 4,3 m til austurs á vesturhluta lóðarinnar og norðvesturhorni vegna aðkomuvegar sem skilgreindur er í gildandi deiliskipulagi. Lóðarstærð breytist úr 694 m² í 578 m².

Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 10. apríl 2025.
Samþykkt með tilvísun í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

8.2112910 - Vatnsendablettur 241A. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram uppfærð tillaga umhverfissviðs að breytingu á deiliskipulagi við Vatnsendablett 241A dags. 9. maí 2025. Í breytingunni felst að lóðinni verði skipti í tvær lóðir og að heimilt verði að reisa einbýlishús á einni hæð ásamt kjallara á hvorri lóð í samræmi við 2.2.6 gr. eignarnámssáttar Kópavogsbæjar og ábúanda Vatnsenda dags. 30. janúar 2007.

Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 9. maí 2025 ásamt greingargerð og skýringarmyndum.

Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2025.
Samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 19:19.