Skipulags- og umhverfisráð

24. fundur 16. febrúar 2026 kl. 15:30 - 19:10 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson varaformaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson aðalfulltrúi
  • Helga Jónsdóttir aðalfulltrúi
  • Leó Snær Pétursson aðalfulltrúi
  • Hákon Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Indriði Ingi Stefánsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar, f.h. skipulagsfulltrúa
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2601028F - Bæjarstjórn - 1333. fundur frá 10.02.2026

2601032F - Skipulags- og umhverfisráð - 23. fundur frá 02.02.2026.



2512205 - Hæðarhvarf 2. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.



2402739 - Nónhæð. Nónsmári 1-17. Breytt deiliskipulag.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með sex atkvæðum.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2601031F - Bæjarráð - 3245. fundur frá 05.02.2026

2601032F - Skipulags- og umhverfisráð - 23. fundur frá 02.02.2026.



2512205 - Hæðarhvarf 2. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.



2402739 - Nónhæð. Nónsmári 1-17. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Almenn erindi

3.2401538 - Gunnarshólmi. Breytt svæðisskipulag. Vaxtarmörk.

Lagt fram erindi svæðisskipulagsstjóra f.h. svæðisskipulagsnefndar dags. 28. apríl 2025 ásamt minnisblaði dags. 9. apríl 2025 varðandi afgreiðslu nefndarinnar á beiðni Kópavogsbæjar um að hafin verði vinna við við breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags. Í erindinu er kallað eftir frekari gögnum frá Kópavogsbæ.

Þá er lögð fram greinargerð með samantekt dags. febrúar 2026 ásamt uppfærðu áhættumati vegna vatnsverndar dags. 6. nóvember 2025. Einnig eru lagðar fram umsagnir Veitna dags. 30. september 2025, Heilbrigðiseftirlits dags. 25. október 2025, 4. desember 2025 og 5. febrúar 2026, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu dags. 15. janúar 2026, Vegagerðarinnar dags. 21. janúar 2026, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 27. janúar 2026, Strætó bs. dags. 29. janúar 2026 og Sorpu dags. 5. febrúar 2026. Einnig minnisblað Verkís dags. 2. október 2025 varðandi náttúruvá, sameinað skjal með ítargögnum fyrir áhættumat, minnisblað HMS dags. 18. september 2025 og drög að skipulagslýsingu dags. 21. janúar 2025.

Stefán Gunnar Thors frá VSÓ ráðgjöf og Sveinn Óli Pálmarsson frá Vatnaskilum gerðu grein fyrir erindinu.
Lagt fram.

Gestir

  • Sveinn Óli Pálmarsson - mæting: 15:30
  • Stefán Gunnar Thors - mæting: 15:30

Almenn erindi

4.2208454 - Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 3. febrúar 2026 varðandi breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæðið á Kársnesi.

Í erindinu er bent á atriði sem bregðast þarf við áður en stofnunin staðfestir breytinguna.
Lagt fram. Vísað til umsagnar og úrvinnslu skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

5.2103759 - Kársnesstígur á sunnanverðu Kársnesi. Deiliskipulag.

Með vísan til bókunar skipulags- og umhverfisráðs á fundi þann 2. febrúar 2026 er fulltrúum frá Útivistarsamtökum Kársness og Landssamtökum hjólreiðamanna boðið að koma fyrir ráðið til að fylgja eftir umsögnum sínum og gera nánari grein fyrir þeim sjónarmiðum sem þar koma fram.
Umræður.

Gestir

  • Finnur Pálmi Magnússon - mæting: 16:30
  • Sigurborg Arnarsdóttir - mæting: 16:30
  • Árni Davíðsson - mæting: 16:45
  • Sigurður Grétarsson - mæting: 16:45
  • Sólveig Lind Ásgeirsdóttir - mæting: 16:45
  • Haukur Eggertsson - mæting: 16:45

Almenn erindi

6.26011825 - Þríhnúkar. Nýtt deiliskipulag

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 þar sem óskað er eftir heimild skipulags- og umhverfisráðs til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Þríhnúka og nærliggjandi svæði, í samræmi við gildandi aðalskipulag Kópavogs. Markmið deiliskipulagsvinnunnar er að skapa ramma um framtíðarnýtingu svæðisins.

Ester Annar Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins Dags Gissurarsonar að hafin verði vinna við gerð nýs deiliskipulags fyrir Þríhnúka. Gunnar Sær Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Helga Jónsdóttir vék af fundi kl. 18:47.

Almenn erindi

7.26022205 - Marbakkabraut 38. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 13. febrúar 2026 þar sem umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut um byggingarleyfi er vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð alls 143,3 m² að birtu flatarmáli, á suðurhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27.

Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 12. febrúar 2026.
Samþykkt með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum á lóðunum nr. 10, 12, 24, 26, 28, 30, 32, 34 og 36 við Marbakkabraut.

Almenn erindi

8.26021783 - Fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar um lýsingar.

Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 9. febrúar 2026 um lýsingu á auglýsingaskiltum á strætóskýlum, lýsingar nærri gangbrautum og hvort sömu reglur gildi um lýsingu á höfuðborgarsvæðinu öllu.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Fundi slitið - kl. 19:10.