Skipulagsráð

16. fundur 16. október 2017 kl. 16:30 - 19:05 í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Fundinn sátu:
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir formaður
  • Andrés Pétursson aðalmaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal varaformaður
  • Sigríður Kristjánsdóttir aðalmaður
  • J. Júlíus Hafstein aðalmaður
  • Ása Richardsdóttir aðalmaður
  • Kristinn D Gissurarson aðalmaður
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Berglind Ósk Kjartansdóttir
  • Smári Magnús Smárason
  • Steingrímur Hauksson
  • Valdimar Gunnarsson
  • Auður Dagný Kristinsdóttir
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir
Fundargerð ritaði: Berglind Ósk Kjartansdóttir ritari
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.1710001F - Bæjarráð - 2885. fundur frá 05.10.2017

1701009 Lyklafellslína 1. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

1702284 Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Tillaga að breytingu. Hágæðakerfi almenningasamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlína.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

1704228 Skjólbraut 11. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

1707262 Smárinn. Reitur A 10. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

1707031 Bjarnhólastígur 3. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.1710002F - Bæjarstjórn - 1163. fundur frá 10.10.2017

1701009 Lyklafellslína 1. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fresta málinu á milli funda. Unnið verði minnisblað fyrir bæjarstjórn af bæjarritara í samræmi við þær athugasemdir sem fram komu á fundinum. Minnisblaðið verði sent í drögum til bæjarfulltrúa og þeim boðið að gera athugasemdir áður en það verði fullunnið.

1702284 Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Tillaga að breytingu. Hágæðakerfi almenningasamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlína.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum gegn einu atkvæði Kristins Dags Gissurarsonar.

1704228 Skjólbraut 11. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum gegn einu atkvæði Ólafs Þórs Gunnarssonar.

1707262 Smárinn. Reitur A 10. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

1707031 Bjarnhólastígur 3. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Almenn erindi

3.1403199 - Laxalind 15. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Lagt fram minnisblað lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem tekin er saman ferillinn um breytingar á deiliskipulagi Laxalindar 15 og framkvæmdum á lóðinni, dags. 6. júní 2017. Þá lagt fram nýtt minnisblað lögfræðideildar, dags. 5. október 2017.
Frestað.

Almenn erindi

4.1707228 - Hlíðasmári 12. Kynning á byggingaleyfi.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sigurðar Einarssonar arkitekts dags. 6. júlí 2017 fyrir hönd lóðarhafa þar sem óskað er eftir að reisa reiðhjólaskýli framan við húsið sbr. uppdrátt í mkv. 1:500. Athugasemdafresti lauk 18. september 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 16. október 2017. Einnig lagt fram breytt erindi dags. 16. október 2017 þar sem komið er til móts við innsenda athugasemd.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 16. október 2017 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 12. október 2017 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

5.1708831 - Hófgerði 18a. Kynning á byggingarleyfi.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Rúnars Inga Guðjónssonar, byggingafræðings, fh. lóðarhafa að viðbyggingu (stækkun anddyris) við Hófgerði 18a. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 2. ágúst 2017. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2017 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Hófgerðis 16, 18; Borgarholtsbrautar 32, 34, 36, 38 og Skólagerðis 4 og 6. Athugasemdafresti lauk 5. október 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

6.1707052 - Hamraborg 10. Svalalokun.

Lagt fram að nýju erindi eiganda 5. hæðar Hamraborgar 10, upphaflega dags. 30. júní 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að glerja altan á efstu hæð hússins vegna viðvarandi leka frá þaki. Þá lögð fram ný bréf frá eigendum, annað dags. 9. október 2017 og hitt dags. 13. október 2017.
Lagt fram og kynnt.

Almenn erindi

7.1708425 - Sunnubraut 30. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju erindi Guðmundar Gunnlaugssonar, arkitekts fh. lóðarhafa Sunnubrautar 30 dags. 13. júlí 2017. Í erindinu felst ósk um heimild til að rífa einbýlishús á lóðinni byggt 1939 ásamt bílskúr byggður 1966 samtals 130,8 m2 að flatarmáli. Lóðin er 793,0 m2 og núverandi nýtingarhlutfall 0,16. Jafnframt er óskað heimildar til að reisa á lóðinni einbýlishús á tveimur hæðum með ásamt áfastri bílgeymslu með þaksvölum. Samanlagður gólfflögur er áætlaður 310 m2 og nýtingarhlutfall 0,39. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 ásamt skýringarmyndum dag. 13. júlí 2017. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2017 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum Sunnubrautar 26, 27, 28, 29, 31, 32, 33, 34, 35 og Þinghólsbrautar 25, 27, 29 og 31. Þá lagður fram grenndarkynningaruppdráttur og skjal með undirskrifuðu samþykki lóðarhafa í grennd.
Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

8.17091058 - Turnahvarf 8. Óskað eftir breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi

Lögð fram fyrirspurn Vigurs fjárfestingar ehf. dags. 25. september 2017 varðandi breytingu á aðal- og deiliskipulagi á lóðinni nr. 8 við Turnahvarf.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar.

Almenn erindi

9.1709733 - Digranesvegur 12. Kynning á byggingarleyfi.

Lögð fram að nýju tillaga Móheiðar HH. Obel, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttri notkun húsnæðis við Digranesvegi 12. Í breytingunni felst að atvinnuhúsnæði (tvíbreiðum bílskúr) er beytt í 45 m2 íbúð. Uppdrætti í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 22. ágúst 2017. Á fundi skipulagsráðs 19. september 2017 var málinu frestað.
Hafnað og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

10.17031299 - Kársneshöfn, svæði 8. Bakkabraut 1-23, Nesvör 1 og Vesturvör 29, 31 og 33. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 15. maí 2017 að breyttu deiliskipulagi Kársneshafnar, sem samþykkt var í bæjarstjórn 23. janúar 1990. Skipulagssvæðið nær til Bakkabrautar 1 til 23, Nesvarar 1 og Vesturvarar 29, 31 og 33 og afmarkast af lóðarmörkum Vesturvarar 30 og 32 til norðurs, lóðarmörkum Bakkabrautar 6-16 til austurs, smábátahafnarinnar til suðurs og opnu bæjarlandi til vesturs.
Svæðið sem er um 5 ha að stærð er hluti þróunarsvæðis Kársnes og nær til núverandi lóða Bakkabrautar 5, 7, 9 og Vesturvarar 29. Deiliskipulagssvæðið er sem svæði 8, reitir 1-7 í samþykktri skipulagslýsingu fyrir umrætt svæði.
Í breytingunni felst að koma fyrir um 129 nýjum íbúðum á svæðinu, endurnýja hluta eldra athafnahúsnæði og reisa nýtt húsnæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir að núverandi athafnahúsnæði við Bakkabraut 9 verði rifið. Heildarbyggingarmagn á svæði 8 verður eftir breytingu um 25.000 m2 þar af um 11.000 m2 í verslun, þjónustu og athafnahúsnæði. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum, greinargerð og skipulagsskilmálum dags. 15. maí 2017. Þá lögð fram greinargerðin Kársnes-Þróunarsvæði. Umhverfisskýrsla. Mannvit 12. maí 2017 og minnisblað Mannvits dags. 12. maí 2017, deiliskipulag þróunarsvæðis á Kársnesi - svæði 8 - umhverfismál. Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga að kynna framlagða tillögu. Athugasemdafresti lauk 30. ágúst 2017. Athugasemdir bárust. þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar, dags. 12. október 2017, auk þess lagður fram nýr uppdráttur dags. 16. október 2017 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 16. október 2017 ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 12. október 2017 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma, minnisblaði verkfræðistofunnar Mannvits, dags. 12. maí 2017 og umhverfisskýrslu Kársnes Þróunarsvæði dags. 12. maí 2017. Með tilvísan í lið 2.4 í skipulagsskilmálum svæðisins samþykkir skipulagsráð jafnframt að unnin verði nánari útfærsla á hönnun bæjarlandsins á deiliskipulagssvæðinu. Lögð verði áhersla á vandaða hönnun og efnisval m.a hvað varðar frágang hafnar, torg, opin svæði, bolverk, gróður, lýsingu, göngu- og hjólaleiðir svo og yfirborð gatna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Fundarhlé kl. 18:17
Fundi fram haldið kl. 18:26

Bókun frá Guðmundi Geirdal:
"Til grundvallar þeirri deiluskipulagsbreytingu sem hér er samþykkt er viljayfirlýsing sem felur í sér að aðstaða sú sem bátaeigendur hafa við Kópavogshöfn, svo sem til að taka báta upp, taka eldsneyti og aðgangur að bryggju með krana ásamt öðru því sem bátaeigendur hafa komið sér upp við núverandi aðstöðu verði fullnægt á öðru svæði við Kópavogshöfn í samráði við notendur hafnarinnar.
Þess skal gætt að ný aðstaða verði tilbúin áður en núverandi aðstaða verður tekin úr notkun."

Andrés Pétursson, Kristinn Dagur Gissurarson, Ármann Kr. Ólafsson, Sigríður Kristjánsdóttir og Júíusi Hafstein taka undir bókun Guðmundar.

Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:
"Mikilvægt er við uppbyggingu aðstöðu við höfnina sé horft til umhverfisþátta svo sem rafvæðingu bátaflotans."

Fundarhlé kl. 18:39
Fundi fram haldið kl. 18:44

Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
"Undirrituð styður tillöguna í heild en leggur áherslu á eftirfarandi. Þarfir Hjálparsveitar skáta fyrir rúmt athafnasvæði eru miklar. Taka þarf tillit til þess í áframhaldandi vinnu. Undirrituð telur að vanda þurfi mjög til verka við hönnun hafnarsvæðisins og gera ráð fyrir menningar og mannlífsauðgandi starfsemi."

Kristinn Dagur Gissurarson, Andés Pétursson og Margrét Júlía Rafnsdóttir taka undir bókun Ásu.

Almenn erindi

11.1705661 - Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114. Svæði 12. Deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Teiknistofunnar Traðar að deiliskipulagi fyrir reit 12 í skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Kársness. Nánar tiltekið nær tillagan til götureitar sem afmarkast af Nesvör til norðurs, Kársnesbraut til austurs, Þinghólsbraut til suðurs og Hafnarbraut til vesturs. Í tillögunni felst að núverandi byggingar að Hafnarbraut 4, 6, 8 og 10 verða rifin og nýtt fjögurra hæða íbúðarhúsnæði með kjallara byggt í þeirra stað. Á lóðinni Hafnarbraut 4-8 verða að hámarki 38 íbúðir og áætlað nýtingarhlutfall 1,97 (2,46 með kjallara) og 1,3 bílastæði á íbúð. Á lóð Hafnarbrautar 10 eru ráðgerðar 40 íbúðir áætlað nýtingarhlutfall 1,83 (2,28 með kjallara) og 1,3 bílastæðum á íbúð.
Á lóðunum Kársnesbraut 108-114 er í tillögunni gert ráð fyrir að byggja eina íbúðarhæð ofan á núverandi atvinnuhúsnæði með samtals 34 íbúðum. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 5. maí 2017. Þá greint frá samráðsfundi með lóðarhöfum ofangreindra lóða sem haldinn var 9. maí 2017 á skipulags- og byggingardeild. Athugasemdafresti lauk 16. október 2017. Athugasemdir bárust.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar.

Almenn erindi

12.1710147 - Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Laugavegur-Skipholt, reitur 25.

Lagt fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dagsett í september 2017 um breytingar á aðalskipulagi vegna Laugavegs-Skipholts, reits 25. Um er að ræða aukningu byggingarmagns og breyttar heimildir um fjölda íbúða.
Lagt fram og kynnt.

Fundi slitið - kl. 19:05.