Skipulagsráð

103. fundur 16. ágúst 2021 kl. 15:30 - 18:18 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Helga Hauksdóttir formaður
  • Jóhannes Júlíus Hafstein aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson aðalmaður
  • Kristinn D Gissurarson aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Smári Magnús Smárason arkitekt
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir arkitekt
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir lögfræðingur
  • Bergljót Sigríður Einarsdóttir verkefnastjóri
  • Kristjana H Kristjánsdóttir verkefnastjóri
  • Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir ritari
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2106025F - Bæjarráð - 3052. fundur frá 15.07.2021

2103140 - Birkigrund 57. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fjórum atkvæðum og hjásetu Péturs H. Sigurðssonar.

2102309 - Hlaðbrekka 17. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum og hafnar erindinu.

2102370 - Kársnesbraut 106. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum og hafnar erindinu.

21031048 - Þorrasalir 37. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum.

2104748 - Ásbraut 3-5. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum.

2105385 - Sæbólsbraut 38. Kynning á byggingarleyfi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum.

Almenn erindi

2.1905126 - Dalaþing 13. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram breytt tillaga Einars Ólafssonar arkitekts fyrir hönd lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðinni. Í gildandi deiliskipulagi er á lóðinni gert ráð fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum, stakstæðum bílskúr og hesthúsi ásamt gerði. Í breyttri tillögu felst að komið verði fyrir tveimur einbýlishúsum á einni hæð ásamt parhúsi á tveimur hæðum auk þess sem aðkoma að húsunum breytist með vegi og bílastæðum miðlægt á lóðinni. Parhús Dalaþing 13a og 13b er áætlað 400 m2 að flatarmáli á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og fjórum bílastæðum á lóð. Einbýlishús Dalaþing 13c er áætlað um 220 m2 að flatarmáli á einni hæð með innbyggðum bílskúr og þremur bílastæðum á lóð. Einbýlishús Dalaþing 13d er áætlað um 210 m2 að flatarmáli á einni hæð með þremur bílastæðum á lóð. Lóðin er 3.349 m2 að flatarmáli og verður nýtingarhlutfall eftir breytingu 0,25.
Rök fyrir breytingunni eru þau að nýtingarhlutfall lóðarinnar samkv. gildandi deiliskipulagi eru langt undir því meðaltali sem er í næsta nágrenni Dalaþings 13. Fordæmi eru fyrir ámóta þéttingu í næsta nágrenni. Ekki er talið að umrædd breyting hafi veruleg neikvæð umhverfisáhrif á útsýni, skuggavarp eða nánd eins og skýringarmyndir í umsögn skipulagsdeildar dags. 16. ágúst 2021 og fylgja deiliskipulagi þessu. Aukning um 33 bíla á sólarhring er hlutfallslega lítil með umferðarrýmd Dalaþings í huga en við Dalaþing eru skráðar 33 íbúðir með um 370 bíla umferð á sólarhring. Ekkert slys er skráð frá 2015 til dagsins í dag og litlar líkur á aukningu þeirra. Áhrif á samfélag og eignir er jákvætt fyrir heildina en getur verið neikvætt fyrir hús í nágrenni Dalaþings 13 miðað við núverandi hús á lóð standi óbreytt en lítil eða engin áhrif á samfélag og eignir miðað við gildandi deiliskipulag með nýjum byggingarreit og hesthúsi ásamt gerði.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Þá er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 13. ágúst 2021 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma.
Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag og skipulagsskilmála fyrir Þing samþ. í bæjarstjórn 24. maí 2005. Breytt tillaga er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum dags. 26. mars 2021 og breytt 16. ágúst 2016 þar sem texta greinargerðar er breytt.
Fundarhlé kl. 17:05.
Fundi framhaldið kl. 17:28.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 16. ágúst 2021. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

3.2103185 - Glaðheimar - vesturhluti. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga að breyttu deiliskipulagi Glaðheima vesturhluta dags. 19. apríl 2021 með áorðnum breytingum dags. 16. ágúst 2021.
Skipulagssvæðið, sem er 8.6 ha að flatarmáli, afmarkast af veghelgunarsvæði Reykjanesbrautar til vesturs, til norðurs afmarkast það af fyrirhugaðri tengibraut sem liggur frá gatnamótum Bæjarlindar og Glaðheimavegar að Reykjanesbraut, Álalind 1-3 og til austurs af athafnasvæði við Askalind og Akralind og til suðurs afmarkast það af veghelgunarsvæði Arnarnesvegar. Í gildandi deiliskipulagi frá 2009 er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á umræddu svæði samtals um 88.000 m2 ofanjarðar. Í breytingunni felst að áður fyrirhugaðri byggð um miðbik deiliskipulagssvæðisins er breytt úr atvinnuhúsnæði á 5-8 hæðum í 9 fjölbýlishús sem verða 3-12 hæða með um 468 íbúðum, leikskóla og opið svæði. Á norðurhluta skipulagssvæðisins nánar tiltekið við húsagötu A nr. 2-3 er fallið frá verslunar- og þjónustuhúsnæði á þremur efstu hæðum hússins (húsa) og þess í stað komið fyrir 32 íbúðum. Heildarfjöldi íbúða á svæðinu öllu verður að hámarki 500 íbúðir. Í miðju skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir leikskóla. Suðvestan fyrirhugaðs Glaðheimavegar (á suðurhluta svæðisins) er gert ráð fyrir 7 lóðum fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á 2 til 4 hæðum. Byggingarreitir, lóðir og lóðastærðir verslunar- þjónustu og athafnahúsa breytast sem og aðkoma og fjöldi bílastæða. Auk þess er gert ráð fyrir að lega tengibrautar um svæðið í framhaldi af Glaðheimavegi að Arnarnesvegi breytist. Heildarstærð atvinnuhúsnæðis með kjallara og bílageymslum er áætluð um 50.000 m2 en um 36.000 m2 án bílageymslna og heildarstærð íbúðarhúsnæðis með kjallara og bílageymslum er áætluð um 89.000 m2. Stærð leikskóla er um 1.500 m2. Heildar byggingarmagn á deiliskipulagssvæðinu er áætlað um 135.000 m2 þar af um 106.000 m2 án bílageymslna. Svæðisnýtingarhlutfall deiliskipulagssvæðisins miðað við heildarbyggingarmagn er áætlað um 1.57 og 1.22 án bílakjallara neðanjarðar. Gert er ráð fyrir einu stæði á hverja 75 m2 í verslun og þjónustu og einu stæði á hverja 100 m2 í atvinnuhúsnæði, geymslu - og kjallararými. Reikna skal með 1,2 stæðum á hverja íbúð með gestastæðum. Miðað við 2,5 íbúa á íbúð er áætlað að á svæðinu verði um 1.250 íbúar.
Á fundi skipulagsráðs 5. júlí 2021 voru lagðar fram athugasemdir, ábendingar og umsagnir sem bárust á kynningartíma og var málinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Í breyttu erindi dags. 19. apríl 2021 og breytt 16. ágúst 2021 er komið að hluta til móts við innsendar athugasemdir sem bárust á kynningartíma sbr. eftirtalin atriði:
Texta um vöktun á loftgæðum og spennistöðvar hefur verið breytt í greinargerð sem og texta um að gert verið minnisblað um vind og áhrif hans á hús sem hærri eru en 9 hæðir bætt inn í greinargerð. Auk þess hefur á skipulagsuppdrætti tengistöð verið komið fyrir við norðurlóðamörk húsagötu D nr. 4 og veghelgunarmörk gerð sýnilegri.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 16. ágúst 2021 um athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Uppdráttur í mkv. 1:1000 sem inniheldur greinargerð og skýringarmyndir. Skipulagsskilmálar dags. 19. apríl og breytt 16. ágúst 2021. Skýringahefti B dags. 19. apríl 2021. Með tillögunni fylgir einnig minnisblað verkfræðistofunnar Mannvits um forsendur fyrir bílaumferð dags. 15. apríl 2021, umhverfismat og hljóðskýrsla dags. 19. apríl 2021 og skýrsla um áhrif nýs deiliskipulags Glaðheima á Heimsmarkmiðin dags. 29. 3 2021 en í þeirri sömu skýrslu er að finna umhverfismat Mannvit dags. 19. apríl 2021. Áhættumat vegna loftslagsbreytinga dags. 30. apríl 2021 frá verkfræðistofunni Mannviti. Skýrsla Mannvits um hljóðvist og áhrif mótvægisaðgerða dags. 7. maí 2021 og að lokum rýni á deiliskipulagstillögu á Glaðheimasvæði II.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

4.2108507 - Hugmyndsamkeppni um útfærslu Reykjanesbrautar í Kópavogi

Lagt fram minnisblað skipulagsdeildar um hugmyndasamkeppni um útfærslu Reykjanesbrautar milli Skógarlindar og Arnarnesvegar dags. 29. júlí 2021.
Lagt fram og kynnt.

Almenn erindi

5.2108392 - Digranesvegur 72a. Fyrirspurn.

Lagt fram erindi Huldu Jónsdóttur arkitekts fyrir hönd lóðarhafa Digranesvegar 72A dags. 9. júlí 2021. Óskað er eftir leyfi til að stækka kjallara eignarinnar um 43 m² eða 47,3 brúttó m². Breytingarreitur óbreyttur og hús óbreytt frá götu. Einungis áhrif á austur og norður útliti þar sem jarðvegur lækkar til að gera ráð fyrir gluggum. Núverandi stærð er 179,4 m² og nýtingarhlutfall lóðar er 0,27. Eftir stækkun kjallarans yrði stærð hússins 222,4 m² og nýtingarhlutfall 0,34. Uppdrættir í mkv. 1:100 - 1:500 dags. 9. júlí 2021.
Skipulagsráð lítur jákvætt á að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Almenn erindi

6.2103901 - Fjallakór 1. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts dags. 22. mars 2021 f.h. lóðarhafa Fjallakórs 1 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að reisa 41,7 m² viðbyggingu á suðvestur hlið hússins. Við breytinguna stækkar húsið úr 260,4 m² í 302,1 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,49 í 0,57. Undirritað samþykki lóðarhafa Fjallakórs 1a, 2, 3, 4, 6 og 8 liggur fyrir. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 22. mars 2021. Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu. Hvorki athugasemdir né ábendingar bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

7.2103902 - Fjallakór 1A. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts dags. 22. mars 2021 f.h. lóðarhafa Fjallakórs 1A þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að reisa 29,1 m2 viðbyggingu á suðaustur hlið hússins. Við breytinguna stækkar húsið úr 260,4 m2 í 289,5 m2. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,54 í 0,60. Undirritað samþykki lóðarhafa Fjallakórs 1, 2, 3, 4, 6 og 8 liggur fyrir. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 22. mars 2021. Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu. Hvorki athugasemdir né ábendingar bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

8.2104754 - Frostaþing 1. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Páls Gunnlaugssonar arkitekts dags. 28. apríl 2021 fh. lóðarhafa Frostaþings 1 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi. Í breytingunni felst að komið er fyrir geymslu og hobbírými undir húsinu, í kjallara, samtals 138,8 m2 og tröppum á milli hæða. Auk þess er komið fyrir aðgengi út í garð um tröppur úr kjallara. Þá er óskað eftir að reisa 15 m2 smáhýsi, að hluta steinsteypt, á lóðinni sem er hugsað fyrir setustofu, saunu og salerni. Við hlið smáhýsinu er gert ráð fyrir heitum potti með niðurgröfnu lagnarými. Fyrir breytingu er húsið 291,1 m2 en verður 429,9 m2, með smáhýsinu meðtöldu 444,9 m2. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða liggur fyrir. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 27. janúar 2021. Á fundi skipulagsráðs 3. maí 2021 var samþykkt að auglýsa framlagða tillögu. Kynningartíma lauk 10. ágúst 2021. Hvorki athugasemdir né ábendingar bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

9.2108277 - Gunnarshólmi, kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Heimis Freys Haukssonar byggingafræðings fyrir hönd lóðarhafa Gunnarshólma dags. 4. júlí 2021. Óskað er eftir að breyta gistiheimili (F2351076) í íbúðarhúsnæði. Engar frekari breytingar eru fyrirhugaðar á byggingunni, hvorki að utan né innan. Uppdráttur í mkv. 1:500 dags. 4. júlí 2021.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

10.2108266 - Hrauntunga 23, kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Marcos Zoles arkitekt fyrir hönd lóðarhafa Hrauntungu 23 dags. 21. maí 2021. Óskað er eftir leyfi til að byggja 21m² viðbyggingu og port í kjallarahæð til austurs við íbúðarhús. Gengið er úr alrými í kjallara aðalhúss í port. Hringstigi tengir port við verönd á efri hæð. Gengið er úr bílskúr í port og glugga hefur verið bætt við. Stoðveggur er á lóðarmörkum til austurs sem snúa að Hrauntungu 25 og utan um viðbyggingu. Viðbyggingin svipar til núverandi húss í uppbyggingu og útliti.
Núverandi íbúðarhús er skráð 241m². Núverandi nýtingarhlutfall er 0,35. Lóðarstærð er 684m² og heildarbyggingarmagn á lóð eftir breytingu verður 262m² sem mun gefa nýtingarhlutfallið 0,38. Meðaltalsnýtingarhlutfall á lóðum Hrauntungu 13-21 er 0,31 (minnst 0,22 og mest 0,40). Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 21. maí 2021.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hrauntungu 21 og 25, Bræðratungu 7, 9 og 11.
Fylgiskjöl:

Almenn erindi

11.2104219 - Kópavogsbraut 86. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Ívars Haukssonar byggingarverkfræðings dags. 20. mars 2021 fh. lóðarhafa Kópavogsbrautar 86. Á lóðinni stendur steinsteypt tvíbýli byggt 1950, neðri íbúð ásamt bílskúr 134,5 m2 og ris íbúð ásamt bílskúr 126,1 m2. Í erindinu er óskað eftir að stækka kvist í ris íbúð þannig að 2 eldri kvistir eru sameinaðir í einn, lofthæð og þakhalli breytist, heildarstækkun eru 5,5 m2. Undirritað samþykki meðeigenda liggur fyrir. Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 20. mars 2021. Á fundi skipulagsráðs 19. apríl 2021 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu. Kynningartíma lauk 6. ágúst. Hvorki athugasemdir né ábendingar bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

12.2105199 - Mánabraut 5. Kynning á byggingarleyfi

Lagt fram að nýju erindi Ingólfs Margeirssonar byggingartæknifræðings dags. 10. maí 2021 fh. lóðarhafa Mánabrautar 5. Óskað er eftir leyfi til að byggja 38,2 m² viðbyggingu (stofa og svefnherbergi) við vesturhlið á núverandi íbúðarhúsi. Núverandi íbúðarhús er skráð 158,1 m², samþykkt þann 29. júní 1961. Öll áferð, efni og gerð viðbyggingar mun verða í samræmi við núverandi hús. Mesta hæð þaks og útveggja helst óbreytt. Fjarlægð frá lóðarmörkum 4m.
Núverandi nýtingarhlutfall er 0,30. Lóðarstærð er 530 m² og heildarbyggingarmagn á lóð eftir breytingu verður 204,5 m² sem mun gefa nýtingarhlutfall 0,39.
Meðaltalsnýtingarhlutfall annarra lóða í syðri hluta götulínu Mánabrautar er 0,39 (minnst 0,30 og mest 0,44). Á fundi skipulagsráðs 17. maí 2021 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 14. júlí. Hvorki athugasemdir né ábendingar bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

13.2106157 - Skemmuvegur 2A, skrifstofur Byko, breytt deiliskipulag

Lögð fram tillaga Jóhanns Sigurðssonar arkitekts dags. 20. maí 2021 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Skemmuveg 2-4.
Í breytingunni felst breytt afmörkun byggingarreits og aukning á byggingarmagni skrifstofuhúsnæðisins úr 2.450 m² í 3.450 m².
Byggingarmagn núverandi vöruafgreiðslu og afgreiðslu á 1. hæð verður óbreytt 6.547 m²
Við breytinguna verða bílastæði á svæðinu 627 talsins sem er fækkun um 8 stæði frá gildandi deiliskipulagi. Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulagsskilmála. Uppdrættir í mkv. 1:1.000 og 1:500 dags. 20. maí 2021. Á fundi skipulagsráðs 7. júní 2021 var ákveðið að auglýsa framlagða tillögu. Kynningartíma lauk 10. ágúst 2021. Athugasemd barst á kynningartíma.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Almenn erindi

15.2107078 - Aðalskipulag Reykjavíkur. Endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggðog framlenging skipulagstímabils til ársins 2040.

Lagt fram erindi Haralds Sigurðssonar skipulagsfræðings f.h. Reykjavíkurborgar dags. 16. júní 2021 er varðar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur; endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð og framlengingu skipulagstímabils til ársins 2040. Í breytingunum felst m.a. heildaruppfærsla á stefnu um íbúðarbyggð, skilgreining nýrra svæða fyrir íbúðir, stakar breytingar á völdum atvinnusvæðum og samgönguinnviðum, auk þess sem sett eru fram ný megin markmið í völdum málaflokkum. Tillögurnar gera enn fremur ráð fyrir því að tímabil aðalskipulagsins verði framlengt til ársins 2040. Erindinu fylgir skipulagstillögur ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgigögnum. Þá er lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 13. ágúst 2021.
Skipulagsráð samþykkir umsögn umhverfissviðs dags. 13. ágúst 2021.

Fundi slitið - kl. 18:18.