Skipulagsráð

135. fundur 16. janúar 2023 kl. 15:30 - 17:06 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Kristinn D Gissurarson, aðalmaður boðaði forföll og Sveinn Gíslason varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson aðalmaður
  • Hákon Gunnarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Kolbeinn Reginsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Bergljót Sigríður Einarsdóttir verkefnastjóri
  • Kristjana H Kristjánsdóttir verkefnastjóri
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Guðmundur Gunnarsson starfsmaður umhverfissviðs
  • Auðun Helgason lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Guðmundur Gunnarsson ritari
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2212014F - Bæjarráð - 3112. fundur frá 22.12.2022

2201242 - Leiðbeiningar fyrir deiliskipulag og breytingar á lóðum og húsnæði í Kópavogi.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2208241 - Leikskóli við Skólatröð. Deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2109353 - Vatnsendablettur 5. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2211003 - Álfhólsvegur 29. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2212082 - Kríunes. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2212442 - Urðarhvarf 10. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2009744 - Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3 og Þinghólsbraut 77 og 79. Reitur 13.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2212012F - Bæjarstjórn - 1270. fundur frá 10.01.2023

2201242 - Leiðbeiningar fyrir deiliskipulag og breytingar á lóðum og húsnæði í Kópavogi.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.
2208241 - Leikskóli við Skólatröð. Deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.
2109353 - Vatnsendablettur 5. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.
2211003 - Álfhólsvegur 29. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.
2212082 - Kríunes. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.
2212442 - Urðarhvarf 10. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.
2009744 - Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3 og Þinghólsbraut 77 og 79. Reitur 13.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs.

Fundargerð

3.2212013F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 159. fundur frá 20.12.2022

Fundargerð í fimm liðum.

Almenn erindi

4.22114382 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breyting á vaxtarmörkum við Rjúpnahlíð. Skipulagslýsing.

Lagt fram að nýju erindi Jóns Kjartans Ágústssonar, svæðisskiplagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 9. nóvember 2022 um skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á vaxtarmörkum við sveitarfélagsmörk Kópavogs og Garðabæjar í Rjúpnahlíð/Rjúpnahæð. Óskað er eftir því að lýsingin verði tekin til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á fundi skipulagsráðs 14. nóvember 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022 var lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 15. desember 2022. Afgreiðslu frestað.
Skipulagsráð samþykkir ofangreinda umsögn skipulagsdeildar dags. 15. desember 2022 og hafnar framlagðri skipulagslýsingu á tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Gestir

  • Jón Kjartan Ágústsson - mæting: 15:38

Almenn erindi

5.2212508 - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2036. Landnotkun Rjúpnahæð, skipulagslýsing.

Lagt fram að nýju erindi Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 12. desember 2022. Óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um skipulagslýsingu fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2036. Í breytingunni felst breytt landnotkun á óbyggðu svæði í Rjúpnadal og Rjúpnahlíð sem liggur að sveitarfélagsmörkum Kópavogs.
Arinbjörn gerði grein fyrir erindinu á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022. Á fundinum var afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 13. janúar 2023.
Skipulagsráð samþykkir ofangreinda umsögn skipulagsdeildar dags. 13. janúar 2023 þar sem fram koma athugasemdir og ábendingar við kynnta skipulagslýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar.
Skipulagsráð samþykkir jafnframt eftirfarandi bókun: Skipulagsráð Kópavogs leggst alfarið gegn því að landnotkun í Rjúpnahlíð verði breytt úr opnu svæði sem er hluti græna trefilsins í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, í athafnasvæði. Slík breyting mun hafa óafturkræf neikvæð áhrif á m.a. ásýnd, umhverfi, umferð og samgöngur í efri byggðum Kópavogs og víðar.

Almenn erindi

6.2208338 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Breyting á aðalskipulagi. Forkynning.

Lögð fram að nýju að lokinni forkynningu tillaga skipulagsdeildar, drög dags. 24. nóvember 2022, að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 varðandi Vatnsendahvarf /Vatnsendahæð.
Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var samþykkt að framlögð tillaga á vinnslustigi að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf ásamt fylgigögnum yrði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingar á aðalskipulagi eru gerðar í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og umsagnir sem hafa borist. Í tillögunni að aðalskipulagsbreytingu er afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði (ÍB-6), opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem staðsetning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin "tengibraut" á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður.
Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Kynningartími var frá 2. desember 2022 til 11. janúar 2023. Fimmtudaginn 8. desember 2022 milli kl. 15:00 og 17:00 var opið hús á bæjarskrifstofum Kópavogs að Digranesvegi 1 þar sem ofangreind tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf var kynnt.
Kynningartíma lauk 11. janúar 2023, eitt erindi barst.
Skipulagsráð samþykkir á grundvelli framlagðrar tillögu á vinnslustigi að breyttu aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð að hafin verði vinna við gerð tillögu að breyttu aðalskipulagi samhliða vinnu við tillögu að deiliskipulagi fyrir umrætt svæði.

Almenn erindi

7.2208095 - Boðaþing 5-13. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Boðaþings 5-13
Í breytingunni felst að innri byggingarreitur fyrir Boðaþing nr. 11 og nr. 13 breytist og færist fjær Boðaþingi 1-3. Gert er ráð fyri aðkomu þjónustubíla á norðurhluta lóðarinnar (sjúkra- sorp og matarbíla) með nýjum einbreiðum akvegi 3,5 til 4 m. á breidd sem liggur frá núverandi bílastæðum að nýjum þjónustuinngangi austan núverandi þjónustukjarna.
Rökin fyrir umræddri breytingu liggja í ósk lóðarhafa um betra innra fyrirkomulag fyrirhugaðra bygginga til hagsbóta fyrir íbúa Boðaþings og til að auka vinnuhagræðingu hjá starfsfólki þar sem minni fjarlægð verður milli heimiliseininga.
Aðkoma og lega bílastæða breytist.
Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag samþykkt í bæjarstjórn 24. ágúst 2006 m.s.br. samþykkt 12. apríl 2016 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 26. apríl 2016.
Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu frestað.
Á fundi skipulagsráðs 5. september 2022 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Á fundi bæjarstjórnar 13. septmber 2022 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.
Kynningartíma lauk 4. nóvember 2022.
Á fundi skipulagsráðs 14. nóvember 2022 voru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. janúar 2023 ásamt breyttri tillögu dags. 12. janúar 2023 þar sem komið er til móts við sjónarmið í framkomnum athugasemdum. Lega aðkomuvegar og núverandi bílastæða færist til suðurs fjær Boðaþingi 1-3, umferð um þjónustuveg verður aðgangsstýrð og merkt er inn á uppdrátt staðsetning smáhýsis/geymsluskúrs á lóð.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 12. janúar 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

8.2212629 - Gilsbakki. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn lóðarhafa dags. 22. desember 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vatnsendablettur Gilsbakki. Í breytingunni felst að komið verði fyrir nýjum byggingarreit að stærð 16.5 x 8.35m á norðvesturhluta lóðarinnar fyrir stakstætt aukahús, alls 107 m². Á lóðinni er fyrir einbýlishús 175,7 m² að flatarmáli og vinnuskúr. Vinnuskúrinn verður fjarlægður.
Byggingarmagn á lóðinni er 175,5 m², verður 282,4 m². Nýtingarhlutfall er 0,06, verður 0,09.
Uppdráttur í mkv. 1:2000, 1:1000 og 1:200 dags. 29. desember 2022 og aðaluppdrættir í mkv. 1:100 dags. 14. desember 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

9.2211265 - Baugakór 10. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Aðalmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 7. nóvember 2022 um breytingu á deiliskipulagi. Stækkun byggingarreits sem nemur stærð svala efri hæðar 34,3 m². Ekki gert ráð fyrir að breyta samþykktu útliti lokunar. Breytingin snýr að nýtingu svalalokunar, að svalalokun verði upphitað rými, sólskáli (A-rými). Sólskálinn verði full glerjaður með möguleika til opnunar til suðurs. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
Meðfylgjandi: Kynningaruppdráttur dags. 19. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Baugakórs 8, 10 og 12.
Kynningartíma lauk 6. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

10.2301081 - Skólagerði 65. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 30. desember 2022 þar sem umsókn Ástríðar B. Árnadóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 65 við Skólagerði um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs.
Í breytingu felst að byggðir verði kvistir á efri hæð hússins, tveir á suðurhlið og einn á norðurhlið.
Byggingarmagn eykst úr 154 m² í 178,2 m². Nýtingarhlutfall er 0,19, verður 0,22.
Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 dags. 26. október 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skólagerðis 58, 60, 62, 63, 64, 67, Borgarholtsbrautar 72 og 74.

Almenn erindi

11.22115502 - Hrauntunga 91. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2022 þar sem umsókn Ellerts Más Jónssonar f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs.
Á lóðinni er raðhús á tveimur hæðum byggt árið 1966, alls 214,3 m² að flatarmáli. Ekki er í gildi deiliskipulag á lóðinni.
Í breytingunni felst að byggt verði við húsið skýli yfir hluta svala á eftir hæð, 24,8 m² að flatarmáli. Byggingarmagn eykst úr 214,3 m² í 239,1 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,36 í 0,4.
Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100, 1:500 dags. 20. október 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 8. desember 2022.
Á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022 var afgreiðslu frestað.
Þá lagt fram minnisblað lögfræðideildar um höfundarrétt dags. 13. janúar 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Hrauntungu 31-119 (oddatölur) og Bröttutungu 1-9 (oddatölur) og Digranesvegar 64 og 66, með sex atkvæðum gegn atkvæði Hákonar Gunarssonar.

Almenn erindi

12.22114856 - Digranesvegur 72A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 11. nóvember 2022, þar sem umsókn Huldu Jónsdóttur arktekts um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að kjallari verði stækkaður um 43 m². Núverandi byggingarmagn á lóðinni er 179,4 m² og verður 222,4 m² eftir breytingu. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,29 í 0,36.
Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 28. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2022 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Digranesvegar 70 og 72, Hrauntungu 133.
Kynningartíma lauk 13. janúar 2023, athugasemdir bárust.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Almenn erindi

13.22115501 - Grenigrund 8. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2022, vegna umsóknar K.R. arkitekta f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi.
Á lóðinni er fjölbýlishús á þremur hæðum byggt árið 1958. Ekki er í gildi deiliskipulag á lóðinni. Í breytingunni felst viðbygging á einni hæð við vesturhlið hússins, 8,3 m² að flatarmáli. Byggingarmagn eyskt úr 386 m² í 394,3 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,38 í 0,39. Samþykki meðeigenda liggur fyrir.
Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100 dags. 14. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2023 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Grenigrundar 2A, 2B, 4, 6 og 10.
Kynningartíma lauk 13. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

14.2301205 - Garðabær, Tinnuvellir 8-10, Kjóavöllum. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram erindi Arinbjarnar Vilhjálmssonar skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 29. desember 2022, varðar breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla. Tillagan nær til lóðanna Tinnuvellir 8 - 10, lóðirnar sameinaðar með tveimur parhúsum. Byggingarreitur lengist um 8 metra til austurs.
Meðfylgjandi: Deiliskipulagsuppdráttur í mkv. 1:500 og 21:100 dags. 29. desember 2022.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð Kópavogs gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Gunnar Sær Ragnarsson kom til fundar kl. 16:37, áður en umfjöllun um mál 11. á dagskránni hófst.

Fundi slitið - kl. 17:06.