Skólanefnd

99. fundur 29. febrúar 2016 kl. 17:15 í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Fundinn sátu:
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Ólafur Örn Karlsson aðalfulltrúi
  • Ragnhildur Reynisdóttir aðalfulltrúi
  • Þórir Bergsson varafulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalfulltrúi
  • Gísli Baldvinsson aðalfulltrúi
  • Helga María Hallgrímsdóttir varafulltrúi
  • Arnar Björnsson foreldrafulltrúi
  • Hafsteinn Karlsson vara áheyrnarfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá

1.1512172 - Skemmtilegri skólalóðir.

Garðyrkjustjóri Kópvavogs kemur og kynnir verkefnið.
Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri kom og sagði frá verkefninu skemmtilegri skólalóðir.

2.1505229 - Hinsegin fræðsla í grunnskólum Kópavogs. Tillaga frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar

Greinargerð um hinsegin fræðslu lögð fram eftir endurskoðun.
Tillaga grunnskóladeildar um eflingu hinsegin fræðslu er samþykkt og vísað til menntasviðs til úrvinnslu.

3.1107041 - Menntasvið-skóladagatal og starfsáætlun leik- og grunnskóla.

Tillaga um vetrarfrí, skólasetningardag og skólaslit í grunnskólum Kópavogs fyrir skólaárið 2016-2017 lögð fram.
Skólanefnd samþykkir tillöguna með öllum greiddum atkvæðum.

4.1410588 - Menntasvið-stefna um málþroska og læsi

Kynning á vinnu við stefnu.
Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar gerði grein fyrir hvar vinna við sameiginlega stefnu leik- og grunnskóla um málþroska og læsi stendur.

5.1602967 - Grunnskóladeild-Nýjar áherslur um samstarf heimila og skóla.

Tillaga frá áheyrnafulltrúa foreldra í skólanefnd lögð fram.
Hafsteinn Karlsson varamaður skólastjóra vék af fundi kl.19:09.

Skólanefnd vísar tillögunni til menntasviðs til skoðunar.

Fundi slitið.