Skólanefnd

6. fundur 16. mars 2009 kl. 17:15 - 18:30 í Smáraskóla
Fundargerð ritaði: Hannes Sveinbjörnsson ritari
Dagskrá

1.903090 - Innlegg frá skólastjóra Smáraskóla

Sigurlín Sveinbjarnardóttir, skólastjóri, kynnti Ástu B. Schram, nýráðinn aðstoðarskólastjóra til loka skólaársins 2009. Sigurlín fjallaði um úttekt á sjálfsmati skólans sem nú fer fram og kynnti einnig áfangaskýrslu um sjálfsmat Smáraskóla fyrir 2007 -2008.

Ásta Bryndís, aðstoðarskólastjóri, sagði frá árlegu þorraþema skólans.


Rætt um málefni skólans.

2.903110 - Sameiginlegur starfsdagur kennara 25. september


Anna Birna greindi frá undirbúningsvinnu við sameiginlegan starfsdag kennara sem halda á þann 25. september á næsta skólaári.


 Málið rætt.

3.903089 - Skýrsla forvarnardagsins

Skýrsla forvarnardagsins lögð fram til kynningar.

4.903105 - Stefna í málefnum grunnskóla Kópavogs


Áshildur Bragadóttir gerði grein fyrir framvindu mála varðandi vinnu við stefnumótun fyrir grunnskólana.


 Ýmsar athugasemdir komu fram á fundinum en stefnt er að því að leggja stefnumótunina fram til samþykktar á næsta fundi nefndarinnar.

5.902060 - Önnur mál





a.


Formaður upplýsti að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum þann 12. mars að gerður verði viðaukasamningur við skólasamning grunnskólanna. Formaður upplýsti einnig að drög að starfslýsingu fyrir rekstrarstjóra á fræðslusviði hafi verið lögð fram á sama fundi.


 b.


Lagt fram skóladagatal Smáraskóla ásamt fylgiblaði.


 Skólanefnd samþykkir skóladagatalið.

Fundi slitið - kl. 18:30.