Skólanefnd

91. fundur 28. september 2015 kl. 17:15 í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Fundinn sátu:
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Ólafur Örn Karlsson aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon aðalfulltrúi
  • Ragnhildur Reynisdóttir aðalfulltrúi
  • Guðrún Jónína Guðjónsdóttir aðalfulltrúi
  • Gísli Baldvinsson aðalfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir kennarafulltrúi
  • Guðrún G Halldórsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Sigríður María Egilsdóttir varafulltrúi
  • Fanney Long Einarsdóttir vara foreldrafulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar
Dagskrá

1.15084323 - Menntasvið-fundir og verkefni grunnskóladeild

Kynning á hlutverki og helstu verkefnum grunnskóladeildar.
Starfsfólk grunnskóladeildar kom í heimsókn og kynnti vinnu sína.

2.14011128 - Mat og eftirlit sveitastjórna með skólastarfi

Yfirlit yfir lagalega þætti lagt fram.
Lagalegir þættir við mat og eftirlit með skólastarfi kynntir og umræður sköpuðust.

3.1509342 - Tillaga um gjaldfrjálsan grunnskóla í Kópavogi frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur

Samantekt á kostnaði vegna tillögu lagt fram að beiðni skólanefndar.
Skólanefnd vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar með hliðsjón af kostnaðargreiningu. Jafnframt hvetur skólanefnd foreldrafélög og skóla til að leita leiða til að halda kostnaði við innkaup í lágmarki. Skólanefnd horfir til þess að innleiðing spjaldtölva muni lækka kostnað vegna innkaupalista.

4.1509798 - beiðni Samkóps um úttekt á árangri nemenda úr grunnskóla í framhaldsskóla.

Erindi lagt fram.
Erindið er áhugavert en ekki á verksviði grunnskóladeildar.

Fundi slitið.