Skólanefnd

6. fundur 22. mars 2010 kl. 17:15 - 19:15 í Digranesskóla
Fundargerð ritaði: Hannes Sveinbjörnsson kennslufulltrúi
Dagskrá

1.1003116 - Innlegg skólastjóra Digranesskóla

Magnea Einarsdóttir, skólastjóri, sagði frá endurskipulagningu kennsluhátta og breytingum á húsnæði deildar fyrir börn með einhverfu og bauð skólanefnd í skoðunarferð um skólann.

2.1003035 - Hugsanleg sameining Digranes- og Hjallaskóla

Formaður skólanefndar fór yfir gang mála varðandi umræður um sameiningu skólanna. Árni Þór fór einnig yfir málið.

 

Málið rætt.

3.1003174 - Málefni Smáraskóla

Formaður skólanefndar ræddi starfsmannamál Smáraskóla.

4.1003163 - Ályktun SAMKÓP, vegna svara grunnskóla í Kópavogi við fyrirspurnum

Erlendur Geirdal, fulltrúri foreldra, fór yfir helstu atriði í ályktun Samkóps vegna könnunar á starfsháttum í grunnskólum Kópavogs.

 

Málið rætt. Ákveðið að ræða málið frekar á næsta fundi.

5.1003173 - Styrkbeiðnir

a) Lögð fram styrkbeiðni frá Skólahljómsveit Kópavogs, dags. 2. 3. 2010.

 

Skólanefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 88. 062.

 

b) Lögð fram styrkbeiðni frá kennurum MK vegna stærðfræðikeppni grunnskólanna.

 

Skólanefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 200.000.

 

c) Lögð fram umsókn, dags. 18. mars 2010, um ferðastyrk vegna fararstjórnar í keppnisferðalag nemenda í Salaskóla á Evrópumeistaramót í First LEGO til Istanbul.

 

Skólanefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 300.000.

6.1002324 - Fjármál grunnskólanna

Formaður gerði grein fyrir vinnu á fræðsluskrifstofu varðandi endurskoðun á úthlutunarreglum kennslutímamagns til grunnskólanna.

 

Málið rætt.

7.902060 - Önnur mál

a) Formaður skólanefndar upplýsti að Snælandsskóli hafi sigrað í Söngkeppni Samfés og  Upplestrarkeppni grunnskólanna. Lindaskóli sigraði einnig í undankeppninni  í Fitness.

 

b) Formaður bauð Árna Þór Hilmarsson velkominn til starfa í afleysingum í barnsburðarleyfi Önnu Birnu.

Fundi slitið - kl. 19:15.