Velferðar- og mannréttindaráð

3. fundur 10. mars 2025 kl. 16:15 - 17:31 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Björg Baldursdóttir formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir aðalmaður
  • Matthías Björnsson aðalmaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigrún Þórarinsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

Almenn erindi

1.25011086 - Þjónustukönnun sveitarfélaga 2024 - Gallup

Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup.



Á fundi bæjarráðs dags. 6.2.2025 var bókað að bæjarráð feli velferðar- og mannréttindaráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.
Velferðar- og mannréttindaráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að greina niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar þjónustu við fatlað fólk og mögulegar skýringar og koma með tillögur að viðbrögðum.

Almenn erindi

2.25021243 - Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um biðlista

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að fá yfirlit yfir lengd biðtíma eftir félagslegri þjónustu: Hversu lengi hafa þeir beðið sem hafa verið lengst á biðlista eftir þjónustu velferðarsviðs?



Minnisblað velferðarsviðs dags. 3.3.2025 lagt fram.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir upplýsingarnar. Ráðið óskar eftir ítarlegri upplýsingum um biðtíma eftir skammtímadvölum.

Skrifstofa Ráðgjafar

3.2503632 - Erindi frá BOFS vegna forsjárskráningar í þjóðskrá

Lagt fram til kynningar minnisblað skrifstofustjóra dags.3.3.2025 vegna erindis frá Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) vegna forsjárskráningar í þjóðskrá.
Lagt fram.

Önnur mál

4.2501459 - Afmælisnefnd vegna 70 ára afmælis Kópavogsbæjar

Kópavogsbær fagnar 70 ára afmæli 11. maí næstkomandi og af því tilefni hefur tekið til starfa afmælisnefnd sem óskar eftir að nefndir og ráð taki málið upp og komi tillögum áfram til afmælisnefndar. Lagt fram minnisblað verkefnastjóra á skrifstofu stjórnsýslusviðs dags. 18.2.25.
Lagt fram.

Önnur mál

5.24093318 - Málstefna Kópavogsbæjar

Drög að málstefnu lögð fram umsagnar velferðar- og mannréttindaráðs.
Fulltrúar í velferðar- og mannréttindaráði komu fram með athugasemdir við drög að málstefnu. Það vantar að minnast á íslenskt táknmál, einnig var rætt um þær athugasemdir sem menntaráð gerði við málstefnuna s.s. varðandi orðanotkun hugtaksins inngilding o.fl.

Önnur mál

6.25012003 - Styrkir til félagasamtaka

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að nýju fyrirkomulagi styrkveitinga til félagasamtaka á árinu 2026 ásamt yfirliti yfir nýtingu styrkja undanfarin ár.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir framkomna tillögu að nýju fyrirkomulagi styrkveitinga til félagasamtaka.

Önnur mál

7.22067459 - Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.

Fundi slitið - kl. 17:31.