Velferðar- og mannréttindaráð

4. fundur 23. apríl 2025 kl. 16:15 - 19:09 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Björg Baldursdóttir formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir aðalmaður
  • Matthías Björnsson, aðalmaður boðaði forföll og Sigrún Bjarnadóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal, aðalmaður boðaði forföll og Bergljót Kristinsdóttir vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Sigrún Þórarinsdóttir starfsmaður velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri velferðarsviðs
Dagskrá

Almenn erindi

1.25041778 - EXIT - leið út úr afbrotum

Verkefnastjóri ríkislögreglustjóra kynnir samstarfsverkefnið EXIT - leið út úr afbrotum.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu og lýsir áhuga á að Kópavogsbær taki þátt í EXIT - samstarfsverkefninu.

Gestir

  • Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri - mæting: 16:15

Skrifstofa Ráðgjafar

2.25032533 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 3.4.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

Skrifstofa Ráðgjafar

3.2504533 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 27.3.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

Skrifstofa Félagslegs húsnæðis

4.25041926 - Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 12.3.2025, ásamt þar tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.

Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:55

Skrifstofa Félagslegs húsnæðis

5.25041927 - Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 1.4.2025, ásamt þar tilgreindum fylgiskjölum er lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.

Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:55

Skrifstofa Félagslegs húsnæðis

6.25041933 - Vanefndir leigutaka, meðferð mála.

Kynning um meðferð mála vegna vanefnda leigutaka.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

Gestir

  • Rannveig Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:55

Skrifstofa Þjónustu og sértækrar ráðgjafar

7.25042538 - Áfrýjun vegna synjunar um akstursþjónustu

Áfrýjun dags. 26.3.2025, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.

Gestir

  • Kristín Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 17:47

Fundargerðir nefnda

8.2502003F - Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 19. fundur frá 31.03.2025

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Jafnréttis- og mannréttindamál

9.25041771 - Tillaga til velferðar- og mannréttindaráðs varðandi kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur aðalmanni Pírata í velferðar- og mannréttindaráði

Lögð fram tillaga ásamt greinargerð frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um að velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs taki til sérstakrar umfjöllunar kynjahlutföll í fastanefndum bæjarstjórnar, í ljósi þess að kynjahlutföll í að minnsta kosti þremur ráðum - menntaráði, skipulags- og umhverfisráði og velferðar- og mannréttindaráði - uppfylla ekki ákvæði 15. gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Einnig er lagt til að ráðið geri tillögu til bæjarráðs um viðeigandi úrbætur.
Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs tekur undir mikilvægi þess að kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins endurspegli ákvæði 28.gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Ráðið hvetur bæjarstjórn til að bregðast við þar sem við á.

Önnur mál

10.2502216 - Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði óskar eftir upplýsingum um viðaukabeiðnir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður Pírata í velferðar- og mannréttindaráði óskaði eftir að lagðar væru fram þær viðaukabeiðnir sem farið hafa frá velferðarsviði til bæjarstjóra það sem af er kjörtímabili.

Velferðar- og mannréttindaráð vísaði málinu til úrvinnslu sviðsstjóra og er nú lagt fram minnisblað sviðsstjóra dags. 21.4.2025.
Lagt fram.

Önnur mál

11.25041746 - Börn með fjölþættan vanda - samkomulag um ábyrgðar og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga

Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda dags. 19.3.2025 lagt fram til kynningar
Lagt fram.

Önnur mál

12.24102629 - Styrkbeiðni frá Skjólinu

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Skjólinu.
Velferðar- og mannréttindaráð frestar afgreiðslu á beiðni um rekstrarstyrk frá Skjólinu. Óskað er eftir ársreikningi frá rekstraraðila og yfirliti yfir fjölda íbúa frá Kópavogi sem sækja þjónustu í Skjólið.

Önnur mál

13.25041783 - Umsókn um rekstrarstyrk 2025

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Matthildi, samtökum um skaðaminnkun.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir að veita Matthildi styrk að upphæð kr. 650.000- fyrir árið 2025 gegn framvísun ársreiknings.

Önnur mál

14.25042099 - Styrkbeiðni 2025

Lögð fram til afgreiðslu beiðni um rekstrarstyrk vegna ársins 2025 frá Klúbbnum Geysi.
Velferðar- og mannréttindaráð frestar afgreiðslu á beiðni um rekstrarstyrk frá Klúbbnum Geysi. Óskað er eftir umsögn frá velferðarsviði. Einnig er óskað eftir yfirliti yfir fjölda íbúa frá Kópavogi sem sækja þjónustu í Klúbbnum Geysi frá rekstraraðilanum.

Önnur mál

15.22067459 - Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.

Fundi slitið - kl. 19:09.