Velferðar- og mannréttindaráð

14. fundur 09. febrúar 2026 kl. 16:15 - 18:19 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Björg Baldursdóttir formaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir aðalmaður
  • Matthías Björnsson aðalmaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Bjarnadóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Sigrún Þórarinsdóttir starfsmaður velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Jóhanna Lilja Ólafsdóttir Skrifstofustjóri velferðarsviðs
Dagskrá

Almenn erindi

1.25111392 - Kynning á verkefninu Allir með

Að beiðni formanns velferðar- og mannréttindaráðs kynnir verkefnastjóri íþróttadeildar menntasviðs Kópavogs verkefnið "Allir með" sem snýr að aukinni þátttöku barna með fötlun í íþróttastarfi.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

Gestir

  • Ana Tepavcevic - mæting: 16:15

Skrifstofa Ráðgjafar

2.2602498 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 19.1.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.

Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:29

Skrifstofa Ráðgjafar

3.26012986 - Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 27.1.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.

Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:29

Skrifstofa Ráðgjafar

4.2401489 - Reglur um fjárhagsaðstoð

Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim áfram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.

Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:29

Barnavernd

5.2509566 - Kynning á skrifstofu barnaverndarþjónustu

Að beiðni formanns velferðar- og mannréttindaráðs kynnir skrifstofustjóri barnaverndarþjónustu Kópavogsbæjar verklag og framkvæmd eftirlits vegna barna sem vistuð eru utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga nr.80/2002.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

Gestir

  • Dagbjört Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri - mæting: 16:54

Önnur mál

6.2602490 - Bókun 622. fundar stjórnar SSH. Vegna bráða- og viðbragðsteymis barna og ungmenna

Lagður fram til afgreiðslu samstarfssamnningur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna miðlægs bráða-og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna ásamt drögum að verklagsreglum teymisins.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning ásamt verklagsreglum og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn.

Önnur mál

7.2302384 - Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs

Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2025.
Lagt fram.

Önnur mál

8.22067459 - Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðar- og mannréttindaráðs.

Fundi slitið - kl. 18:19.