Borgarholtsbraut 69

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2025 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir lóðina nr. 69 við Borgarholtsbraut fyrir hagsmunaaðilum að Borgarholtsbraut 67 og 71.

Sótt er um að breyta skráningu 24,6 m² atvinnuhúsnæðis á 1. hæð í íbúð.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1279/ 2025, eigi síðar en 22. október 2025.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is. Einnig er hægt er að bóka símtal hjá starfsfólki skipulagsdeildar í gegnum www.kopavogur.is.

Borgarholtsbraut 69
Tímabil
19. september - 22. október 2025