Dalsmári 1. Smáraskóli.

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. apríl 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Dalsmára fyrir hagsmunaaðilum að Dalsmára 1-7.

Í breytingunni felst nýr byggingarreitur, um 19,7m x 28.7m að stærð, fyrir þrjár færanlegar kennslustofur. Fyrirhugaðar kennslustofur verða samtals 428m² á stærð, tengdar saman með tengigangi og á einni hæð. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 4,12m.

Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:250 dags. 11. apríl 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 567/2025, eigi síðar en 30. maí 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Dalsmári 1. Smáraskóli.
Tímabil
30. apríl - 30. maí 2025