Digranesvegur 15. Kópavogsskóli.

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. apríl 2025 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Digranesveg 15, Kópavogsskóla, fyrir hagsmunaaðilum að Skólatröð 1-13 og Hávegi 1 og 4.

Sótt er um byggingarleyfi fyrir fjórum færanlegum kennslustofum á norðausturhluta lóðarinnar. Fyrirhugaðar kennslustofur verða samtals 419m² að stærð.

Uppdrættir í mkv. 1:1000, 1:500, 1:100 og 1:50 dags. 29. apríl 2025 ásamt skuggavarpsgreiningu dags. 7. apríl 2025. 

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 595/2025, eigi síðar en 6. júní 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Digranesvegur 15. Kópavogsskóli.
Tímabil
6. maí - 6. júní 2025