Fjallalind 108

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 31. mars 2025 var samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2025 að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 108 við Fjallalind fyrir hagsmunaaðilum að Fjallalind nr. 102, 104, 106, 147, 149 og 151.

Í breytingunni felst að áður 42 m² óútgrafið rými hefur verið grafið út og tekið í notkun sem geymsla, opnu bílskýli yrði komið fyrir á lóðinni og steyptum skjólvegg á lóðarmörkum.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 615/2025, eigi síðar en 16. júní 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Fjallalind 108
Tímabil
12. maí - 16. júní 2025