Hamraendi 14-20

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 31. mars 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 14-20 að Hamraenda fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 12 og 22 við Hamraenda og 14-16 við Hestheima.

Í breytingunni felst 42,1 m² viðbygging innan hestagerðis vestan megin á lóðinni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,31 í 0,34.

Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 20. febrúar 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 463/2025, eigi síðar en fimmtudaginn 15. maí 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Hamraendi 14-20
Tímabil
8. apríl - 15. maí 2025