Hlíðarvegur 15

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 5. september 2025 var samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Hlíðarvegi 11, 13, 13A, 14, 16, 17, 18, 19 10 og 20A, Hrauntunga 14, 24 og 26 .

Sótt er um leyfi til niðurrifs núverandi einbýlishúss og að byggt verði fjögurra íbúða fjölbýli á tveimur hæðum.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1282/2025, eigi síðar en 22. október 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Hlíðarvegur 15
Tímabil
19. september til 22. október 2025