Hörðuvellir- Tröllakór.

Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi í Kópavogi.

Bæjarráð Kópavogs, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti þann 4. júlí 2024 með vísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Hörðuvelli - Tröllakór. Í breytingunni felst aðlögun skipulagsmarka deiliskipulagsins til suðurs og suðvestur að mörkum aðliggjandi deiliskipulagssvæðis Kjóavalla. Skipulagssvæðið fer úr um 7 ha að flatarmáli í um 6 ha að flatarmáli. Göngustígur suðaustan megin við Tröllakór verður innan skipulagsmarka Hörðuvalla - Tröllakórs.

Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 28. júní 2024.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar við ofangreinda tillögu skulu hafa borist gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 455/2025, eigi síðar en 30. maí 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

 

Hörðuvellir- Tröllakór.
Tímabil
10. apríl til 30. maí 2025