Hraunbraut 8

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 8 við Hraunbraut fyrir hagsmunaaðilum að Hraunbraut 6 og 10 og Kársnesbraut 17 og 19.

 

Sótt er um leyfi fyrir 18,7 m² geymsluskúr norðan við núverandi hús.

 

Ofangreind tillaga er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 1694/2025, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1694/2025, eigi síðar en 4. febrúar 2026.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.