Kársneshöfn. Bakkabraut norðan Vesturvarar og gatnamót.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 22. október 2024 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breyttu deiliskipulagi Kársneshafnar fyrir Bakkabraut og gatnamót við Vesturvör.

Skipulagsbreytingin nær til þess gatnarýmis sem tengist fyrirhugaðri Borgarlínu og þeim samgöngumannvirkjum sem henni fylgja. Engar byggingar eru innan þess svæðis sem breytt er. Borgarlínustöð er staðsett við norðurmörk lóða Hafnarbrautar 27 og Vesturvarar 30. Lóðarmörkum nærliggjandi lóða er breytt og innviðum Borgarlínu afmarkað 25m breitt bæjarland við stöðina. Innan þess er reiknað með að komist með góðu móti fyrir gang- og hjólastígar sitt hvoru megin (5m), brautarpallar sitt hvoru megin og 7m breytt sérrými Borgarlínu. Nákvæm útfærsla borgarlínstöðvar og annarra umferðarmannvirkja ákvarðast í verkhönnun Borgarlínu.

Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 3. apríl 2025. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Ofangreind tillaga er aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar www.kopavogur.is og í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega gegnum Skipulagsgátt www.skipulgsgatt.is málsnr. 639/2025, eigi síðar en fimmtudaginn 3. júlí 2025 Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar á póstfangið skipulag@kopavogur.is.

Kársneshöfn. Bakkabraut norðan Vesturvarar og gatnamót.
Tímabil
19. maí - 3. júlí 2025