Kópavogur- Garðabær. Kjóavellir.

Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi í Kópavogi.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 11. mars 2025 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kjóavelli. Svæðið sem breytingin nær til er innan sveitarfélagsmarka Kópavogs. Í breytingunni felst að komið verði fyrir skólagörðum og garðlöndum fyrir efri byggðir Kópavogs á opna svæðinu OP-5.10. Reiðleið sem liggur um opna svæðið norðan Markavegar færist nær fyrirhuguðum bílastæðum og meðfram henni að hluta til kemur mön sem skermir reiðleiðina frá opna svæðinu. Reiðleiðin sem liggur frá undirgöngum undir Vatnsendaveg og að Tröllakór verður að göngustíg sem heldur áfram um opna svæðið eins og núverandi göngustígar eru um svæðið. Stígur sem nær frá bílastæðum að suðurhluta íþróttahússins Kórsins verður aðgangsstýrður og hægt að aka á til að tryggja gott aðgengi stærri bíla að hleðsludyrum mannvirkisins þegar stórir viðburðir eru haldnir. Undirgöng undir Markaveg verða tekin út og upphækkuð gatnaþrenging sett inn í staðinn til að hægja á akandi umferð um Markaveg. Ný reiðleið kemur sunnan megin meðfram Markavegi og göngustígur fellur út og hann aðeins hafður norðan megin meðfram Markavegi. Þverun með upphækkaðri gatnaþrengingu verður sett inn austar á svæði breytinga sem tengir Heimsendasvæðið við svæðið sunnan Markavegar. Lóð fyrir fjarskiptamastur minnkar, fer úr 493 í 240 . Einnig er fallið frá lóð númer 2 við Heimsenda og 23 bílastæðum við enda lóðar nr. 1 við Heimsenda. Fyrirkomulag annarra bílastæða, gámasvæðis, reiðleiða, tamninga- og hringgerðis innan svæði breytinga breytist lítillega. Heildarfjöldi bílastæða á svæðinu helst óbreyttur.

Samhliða þessari breytingu breytast skipulagsmörk deiliskipulags Hörðuvalla- Tröllakórs til samræmis og aðlagast að gildandi deiliskipulagi Kjóavalla.

Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 28. júní 2024, uppfærður 14. ágúst 2024 og 28. febrúar 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar við ofangreinda tillögu skulu hafa borist gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 453/2025eigi síðar en 30. maí 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Kópavogur- Garðabær. Kjóavellir.
Tímabil
10. apríl - 30. maí 2025