Langabrekka 15

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. nóvember 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 15 við Löngubrekku.

Sótt er um að breyta núverandi geymslu innan bílskúrs í vinnustofu með baðherbergi. Uppdrættir dags. 3. desember 2024. Einnig er lagt fram minnisblað dags. 10. nóvember 2025.

Ofangreind tillaga er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 1549/2025, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1549/2025, eigi síðar en 9. janúar 2026.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Tímabil
21. nóvember til 9. janúar 2026