Marbakkabraut 38

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 16. febrúar 2026 var samþykkt að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi fyrir hagsmunaaðilum á lóðunum nr. 10, 12, 24, 26, 28, 30, 32, 34 og 36 við Marbakkabraut.

 

Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð að hámarki 143,3 m² að flatarmáli, á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27. Fyrirkomulag bílastæða breytist og þeim fjölgar úr tveimur stæðum í fjögur.

 

Ofangreind tillaga, sem er sett fram á uppdrætti dags. 23. mars 2026, er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 289/2026, á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 289/2026 eigi síðar en 4. maí 2026.

 

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is. Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Marbakkabraut 38
Tímabil
27. mars til 4. maí 2026