Örvasalir 26

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 24. nóvember 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 26 við Örvasali fyrir hagsmunaaðilum við Örvasali 9, 11, 20, 22, 24 og 28.

 

Breytingin nær til lóðar nr. 26 við Örvasali en á lóðinni er 221,1 m² einbýlishús. Í breytingunni felst að óútgrafið rými undir húsinu fyrir sjónvarpsherbergi, klósett og geymslu yrði tekið í notkun. Það yrði stækkun upp á alls 49,2 m2. Leyfilegt hámarksflatarmál hússins á lóðinni verður því 270,3 m². Stækkunin er innan byggingarreits. Upprunalega var gert ráð fyrir að húsið yrði á einni hæð en með að taka í notkun óútgrafna rýmið breytist það og verður húsið í deiliskipulagi á tveimur hæðum. Útveggir haldast óbreyttir og ekki er verið að fjölga gluggum eða hurðum.

 

Ofangreind tillaga er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 269/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 269/2026, eigi síðar en 13. apríl 2026.

Örvasalir 26
Tímabil
6. mars til 13. apríl 2026