Rammahluti aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi. Tillaga

Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst tillaga að rammahluta aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 10. júní 2025 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 vegna rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi.

Svæðið afmarkast af strandlínu Kársness til norðurs og vesturs og af núverandi íbúðarbyggð við Þinghólsbraut, Kársnesbraut og Huldubraut austurs og suðurs. Alls er skipulagssvæðið um 57,2 ha. Svæðið er skilgreint sem samgöngumiðað þróunarsvæði í gildandi aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir þéttri og blandaðri byggð við Borgarlínu. Viðfangsefni tillögunnar snýr einkum að áframhaldandi þróun svæðisins með sérstakri áherslu á gæði byggðar, góðar samgöngutengingar m.a. fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og almenningsrými. Sett er fram heildarsýn fyrir framtíðarþróun svæðisins, sem verður útfærð nánar í deiliskipulagsáætlunum fyrir tiltekna reiti á svæðinu.

Athugasemdum og ábendingum skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, máls nr. 580/2024, eigi síðar en fimmtudaginn 18. september 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillögu rammahluta aðalskipulags er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Rammahluti aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi. Tillaga
Tímabil
30. júlí 2025 til 18. september 2025