Tónahvarf 12

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 24. mars 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi „Vatnsendahvarfs-athafnasvæði, svæði 3“ fyrir lóðina nr. 12 við Tónahvarf fyrir hagsmunaaðilum að Tónahvarfi 3 til 10.

Í breytingunni felst að heimilt verði að koma fyrir milliloftum á 1. hæð núverandi byggingar á lóðinni. Byggingarmagn eykst úr 3.355 m² í 3.760 m² og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,63 i 0,71.

Uppdrættir í mkv. 1:1000, 1:500 og 1:250 dags. 10. apríl 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 512/2025, eigi síðar en föstudaginn 23. maí 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Tónahvarf 12
Tímabil
14. apríl - 23. maí 2025