Vallargerði 40

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. Apríl 2025 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Vallargerði 40.

Sótt er um byggingarleyfi fyrir 65,2 m² stakstæðum bílskúr ásamt geymslu á norðurhluta lóðarinnar. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,3 í 0,38. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 25. mars 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 703/2025, eigi síðar en fimmtudaginn 26. júní 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Vallargerði 40
Tímabil
28. maí til 26. júní 2025