Vatnsendablettur 4

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. maí 2025 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Vatnsendabletti 4A og Glæsihvarfi 1 og 2.

Í breytingunni felst heimild til að byggja 67 m² bílgeymslu austan við núverandi einbýlishús á lóðinni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0.03 í 0.04. Uppdrættir í mkv.1:2000, 1:500 og 1:250 dags. 5. maí 2025.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 805/2025, eigi síðar en sunnudaginn 13. júlí 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vatnsendablettur 4
Tímabil
12. júní til 13. júlí 2025