Holtagerði 49

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir lóð nr. 49 við Holtagerði fyrir hagsmunaaðilum að Holtagerði 43, 45, 47, 51, 53, 55 og Skólagerði 32, 34, 36 og 38.

 

Sótt er um leyfi til að byggja 48 m² viðbyggingu sunnanmegin við núverandi hús.

 

Ofangreind tillaga er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 238/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 238/2026, eigi síðar en 30. mars 2026.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.