Kópavogsbraut 105

Grenndarkynning.

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Kópavogsbraut 98, 100, 103, 103A og 107 og Þinghólsbraut 72 og 74.

Sótt er um 55 m² bílgeymslu og 31 m² svalir norðvestanmegin við núverandi hús, sjá uppdrætti dags. 3. desember 2025, uppfært 11. febrúar 2026.

Öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 215/2026, eigi síðar en 26. mars 2026.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.