Langabrekka 33

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2025 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Löngubrekku 33 fyrir hagsmunaaðilum að Löngubrekku 24, 26, 28, 31, 35 og Álfhólsvegi 37 og 39.

Sótt er um 10 m² viðbyggingu á norðaustur hlið núverandi húss á lóðinni, 24,8 m² viðbyggingu við bílgeymslu og stoðvegg á lóðarmörkum. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,27 í 0,34.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr 1261/2025, eigi síðar en 20. október 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.