Langabrekka 35

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Löngubrekku 26, 28, 30, 33 og 37 og Álfhólsveg 35 og 37.

 

Sótt er um 23,6 m² stækkun á bílageymslu á suð-vesturhluta lóðarinnar og stoðvegg á lóðarmörkum nr. 35 og 37 við Álfhólsveg.

 

Ofangreind tillaga er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 287/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 287/2026, eigi síðar en 12. apríl 2026.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.