Nýbýlavegur 1

Auglýsing

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 27. janúar 2026 að setja í kynningu skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Nýbýlaveg 1. Fyrirhugað er að gera breytingu á aðalskipulagi þar sem svæði við Nýbýlaveg 1 sem í dag er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ-5) er breytt í íbúðarbyggð. Um er að ræða óbyggða lóð. Svæðið er um 0,4 ha að stærð.

Skipulagslýsing er fyrsta skrefið í skipulagsferlinu. Hún er unnin til að gera grein fyrir því hvað á að fara fram í skipulagsvinnunni og hvaða markmið liggja til grundvallar. Lýsingin er sett fram til að íbúar og hagsmunaaðilar geti kynnt sér verkefnið í upphafi og sent inn umsagnir eða ábendingar áður en frekar er unnið í skipulaginu.

Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og 18:30 verður opinn fundur um skipulagslýsinguna í sal Snælandsskóla við Víðigrund 2.

Skipulagslýsing er aðgengileg á Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 76/2026 og á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is.

Athugasemdafrestur er til 1. mars 2026 og skulu athugasemdir og ábendingar berast í gegnum Skipulagsgátt.

Nýbýlavegur 1
Tímabil
29. janúar til 1. mars 2026
Kynningargögn
Skipulagslýsing